Talning hefst upp úr klukkan 22 – fyrstu tölur um hálf ellefu
Frá kjörfundi í dag. Trausti Hjaltason og Unnur Líf Ingadóttir á kjörstað í dag. Eyjafréttir/Eyjar.net: ÓPF

Kjörfundur vegna bæjarstjórnarkosninganna í Vestmannaeyjum stendur nú yfir og verður opið á kjörstað til klukkan 22:00 í kvöld. Samkvæmt nýjustu tölum um kjörsókn höfðu 1.512 manns greitt atkvæði á kjörstað klukkan 17:00 eða 42,7 prósent þeirra sem eru á kjörskrá.

Þegar utankjörfundaratkvæði eru tekin með í reikninginn hafa alls 2.152 greitt atkvæði, sem jafngildir um 60,8 prósentum kjósenda í Vestmannaeyjum. Á kjörskrá eru nú 3.538 kjósendur.

Gengið mjög vel

Jóhann Pétursson, formaður yfirkjörstjórnar, segir í samtali við Eyjafréttir að kjördagurinn hafi gengið mjög vel hingað til og allt hafi verið með eðlilegum hætti.

Talning atkvæða hefst upp úr klukkan 22 þegar kjörstaður lokar. Samkvæmt áætlun gætu fyrstu tölur litið dagsins ljós um klukkan 22:30 ef allt gengur samkvæmt áætlun.

Jóhann segir jafnframt að ef vel gangi megi jafnvel búast við lokatölum um klukkan 23:30 í kvöld. Eyjafréttir fylgjast með gangi mála í kvöld og munu birta fyrstu tölur um leið og þær liggja fyrir. Óskar P. Friðriksson, ljósmyndari Eyjafrétta leit við á kjörstað í dag. Myndir hans má sjá hér að neðan.

Nýjustu fréttir

Alexandra Ósk – Íþróttamaður mánaðarins
Sólarbekkurinn á Kletti vinsæll áfangastaður
Tesla opnar sex nýjar hraðhleðslustöðvar í Eyjum
Tímamót í iðn- og starfsnámi í Vestmannaeyjum
Kjarnaborun að hefjast á Landeyjasandi
Lokanir Landeyjahafnar hafa áhrif á gjaldskrá Herjólfs
Svipmyndir frá sólríkum sunnudegi
Jóhannes Grettisson rifjar upp árin á Ísleifi VE
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.