Táningsstúlkur í Vestmannaeyjum myndaðar í laumi
Táningsstúlkur í Vestmannaeyjum voru myndaðar á leið heim úr skóla af ónefndum manni þar í bæ án þeirra vitundar. Myndirnar voru svo birtar á Facebook, nokkrum árum eftir að þær voru teknar, í opnu myndaalbúmi sem kallaðist �??Stelpurnar í bænum.�?? Ein stúlkan segir óþægilegt að velta fyrir sér tilgang myndanna, en þetta kemur fram inni á DV.is.
DV ræddi við Ásthildi Hannesdóttur, ein af stúlkunum sem var mynduð í laumi, sem segir að hún hafi verið 14 ára þegar myndin af henni var tekin, en Ásthildur er í dag 26 ára. Alls voru fjórar myndir, af fjórum mismunandi stelpum, í albúminu og voru þær fyrst birtar á Facebook í maí 2014.
�??Mér var bent á þessar myndir síðasta sumar. �?g tilkynnti þær til Facebook og sendi manninum sem á þær skilaboð og spurði hvers vegna hann ætti þær en fékk engin svör,�?? segir Ásthildur í samtali við DV.
Ásthildur segir að hún hafi lítið hugsað um myndirnar þangað til í gær en þá var henni bent á að þær væru enn á Facebook-síðu mannsins. �?á fékk hún nóg, tók skjáskot af albúminu og spurði vini álits. Í Facebook-færslu Ásthildar kemur fram að um aldraða mann sé að ræða �??sem er þekktur fyrir lítið annað en perraskap.�??
�??Viðbrögðin létu ekki á sér standa. Facebook-ið hjá mér logaði. Fólki fannst þetta sjúkt og spurðu hvort að það mætti deila færslunni. Svo voru margir sem vildu að ég nafngreindi manninn en ég vil ekki gera það. �?etta er lítið samfélag og ég þekki marga sem tengjast honum. Hann er greinilega eitthvað veikur.�??
Eins og fyrr segir voru stúlkurnar á grunnskólaaldri þegar myndirnar voru teknar og þær ekki birtar fyrr en mörgum árum síðar. Ásthildur segir að málið sé skrýtið og að mörgum óþægilegum spurningum sé enn ósvarað.
�??�?g velti líka fyrir mér í hvaða tilgangi voru þessar myndir teknar og ætli hann eigi fleiri myndir af mér eða öðrum ungum stelpum sem hann geymdir bara heima hjá sér. �?að er mjög óþægilegt að hugsa um þetta,�?? segir Ásthildur.
Eftir að málið komst í hámæli í gær var myndaalbúmið �??Stelpurnar í bænum�?? fjarlægt af Facebook-síðu mannsins. Myndirnar af stúlkunum eru þar hins vegar enn, en í öðru myndaalbúmi.
DV.is greindi frá

Nýjustu fréttir

Spurt og svarað: Hildur Rún frá Eyjalistanum
ÍBV á útivelli gegn Val
Aldan enn of há fyrir Álfsnes
Kjarnaboranir hefjast í Eyjum: „Stærsti áfangi í sögu félagsins til þessa“
Vel heppnaður fundur
Krefjandi umræða styrkir okkur
Viðbragð við svari Eyþórs
Sterkari grunnskóli og öflugri framtíð
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.