Tannverndarvika
Íris Þórsdóttir, tannlæknir á Hlýju.

Aðsend grein

Íris Þórsdóttir

Tannverndarvika TFÍ 16.-20. mars 2026

Fræðslunefnd Tannlæknafélags Íslands vekur athygli á Tannverndarvikunni, 16.-20. mars. Við hvetjum alla til þess að hugsa vel um tennur sínar og barnanna sinna ásamt því að halda þessari viku á lofti á vinnustöðum/skólum/dvalarheimilum og alls staðar í samfélaginu.

Í þessari viku viljum við muna eftir tannþræðinum, við viljum velja okkur tannvæna drykki sem innihalda ekki sítrónusýru eða sykur, borða hollan og ósykraðan mat og bursta tennurnar kvölds og morgna. Ef við drekkum súran drykk þá munum við að drekka vatn á eftir til að skola tennurnar og tannbursta ekki fyrr en að minnsta kosti 30 mínútum seinna.

Ennfremur hvetjum við þá sem nota nikótín í einhverskonar formi að minnka notkunina vegna heilsuspillandi áhrifa nikótíns á hjarta- og æðakerfi sem og á gróanda líkamans eftir hvers kyns aðgerðir eða sár. Það gæti einnig verið ein stærsta gjöfin sem þið gæfuð sjálfum ykkur, að taka ákvörðun um að hætta að nota nikótín og er oft hægt að fá aðstoð við það hjá læknum.

Nikótínpúðarnir sem algengt er að nota þessa dagana geta auk þess haft slæm áhrif á
tannholdið, þá sérstaklega á þeim stað sem púðarnir eru notaðir. Þar getur tannhold hörfað og sjaldnast gengur það til baka. Þetta getur verið mikið lýti, valdið því að önnur framtönnin verður “lengri” en hin ásamt bólgu eða roða í tannholdi.

Áhersla Tannverndarvikunnar þetta árið er “Góð munnheilsa alla ævi”.
Grunnurinn er lagður á unga aldri og mælum við með að börn komi fyrst til tannlæknis um 2,5-3 ára. Mikilvægt er að kenna góða munnhirðu snemma og ekki síður vera fyrirmynd fyrir börnin okkar og halda tannþræðinum ávallt á lofti.

Það getur haft mikil áhrif á andlega heilsu ef munnheilsan er léleg en eins getur það verið mjög sjálfseflandi að bæta hana. Þá leggjum við mikið upp úr hollu og næringarríku fæði, því það hjálpar einnig til við góða heilsu munnhols og líkamans alls, ásamt því að styðja við góða andlega heilsu.

Slagorðið sem Alþjóðasamtök Tannlæknafélaga nota í ár er “A Happy Mouth is a Happy Life” og það er að sjálfsögðu markmiðið, að allir geti öðlast hamingjuríkt líf. Tökum skrefin sem við vitum að hjálpa til í því markmiði, veljum góða munnheilsu og verum fyrirmyndir fyrir yngri kynslóðina.

Íris Þórsdóttir
Tannlæknir hjá Hlýju Tannlæknastofu í Vestmannaeyjum
Nefndarmaður í Fræðslunefnd Tannlæknafélags Íslands

Nýjustu fréttir

Tannverndarvika
Gyllta flóran frá Féló vann Stíl 2026
Útboð Vestmannaeyjabæjar um heilsurækt aftur til kærunefndar
Myndband frá höfninni: Steðji VE landar
Að loknu prófkjöri
Bærinn eignfærir lögfræðikostnað  
ÍBV tapaði gegn Haukum
Bæjarráð hafnar bótakröfu vegna gatnagerðar við Alþýðuhús
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.