Tap hjá íslensku stelpunum í fyrsta leik í milliriðli
Elísa Elíasdóttir, Hafdís Renötudóttir, Díana Dögg Magnúsdóttir, Þórey Anna Ásgeirsdóttir og Sandra Erlingsdóttir. Mynd/HSÍ

Arnar Pétursson og stelpurnar hans í íslenska kvennalandsliðinu máttu þola níu marka tap gegn Svartfjallalandi, í fyrsta leik sínum í milliriðli, á HM kvenna í handbolta í dag. Íslenska liðið á því ekki lengur möguleika á sæti í 8. liða úrslitum á mótinu.

Íslensku stelpurnar sýndu fínan fyrri hálfleik en Svartfellingar voru með þriggja marka forystu í hálfleik, 11-14. Svartfellingar skoruðu fjögur fyrstu mörk seinni hálfleiks og komust í 11-18. Íslensku stelpunum gekk illa að stöðva Svartfellsku sóknina og voru Svartfellingar tíu mörkum yfir þegar um tíu mínútur voru til leiksloka. Lokatölur leiksins, 27-36.

Eyjastelpurnar, Díana Dögg Magnúsdóttir, Sandra Erlingsdóttir og Elísa Elíasdóttir komust allar á blað í leiknum.

Mörk Íslands: Þórey Anna Ásgeirsdóttir 6 mörk, Dana Björg Guðmundsdóttir 6, Elín Rósa Magnúsdóttir 6, Díana Dögg Magnúsdóttir 3, Sandra Erlingsdóttir 3, Elín Klara Þorkelsdóttir 1, Katrín Tinna Jensdóttir 1, Elísa Elíasdóttir 1.

Næsti leikur Íslands er á fimmtudaginn kl. 19:30, gegn Spáni.

 

 

 

Nýjustu fréttir

Ölduhæð raskar samgöngum – aðeins ein ferð farin það sem af er deginum
Myndasyrpa frá göngumessu
Myndband | 16 ára Eyjakona stefnir hátt í rallýcrossi
Eva Magnúsdóttir – Félagslífið stóð upp úr
Vilja herða reglur við Surtsey
Stefnir á eina ferð til Landeyjahafnar fyrir hádegi
Plötuútgáfan hefur verið eitt stórt ævintýri
Gul veðurviðvörun á Suðurlandi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.