Tapað stig hjá ÍBV
Íslandsmeistarar ÍBV byrjuðu titilvörnina með jafntefli gegn FH á útivelli í dag en lokatölur urðu 29:29 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 15:17 fyrir ÍBV. ÍBV var yfir allan tímann í leiknum, náði m.a. fimm marka forystu í seinni hálfleik 17:22 en seinni hluti seinni hálfleiks var ekki nógu góður hjá ÍBV. FH-ingar nýttu sér það, söxuðu á forskotið og lokamínúturnar voru æsispennandi. Eyjamenn voru í sókn þegar tæp mínúta var eftir og staðan jöfn 27:27 en Magnús Stefánsson kom Eyjamönnum yfir. FH-ingar jöfnuðu hins vegar þegar tíu sekúndur voru eftir. Eyjamenn fengu eina örsókn í lokin til að reyna komast aftur yfir en skot Agnars Smára Jónssonar í lokin fór framhjá.
Mörk ÍBV: Theodór Sigurbjörnsson 8, Einar Sverrisson 5, Grétar �?ór Eyþórsson 5/1, Agnar Smári Jónsson 4, Magnús Stefánsson 4, Guðni Ingvarsson 2, Andri Heimir Friðriksson 1.
Varin skot: Kolbeinn Arnarson 7/1, Haukur Jónsson 3.

Nýjustu fréttir

Gera ráð fyrir 610 milljóna afgangi á næsta ári
Hausttónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja í myndum
Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjakonur vilja halda í við topplið Hauka
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.