Það koma góðar gusur
Eyjarnar við bryggju í Eyjum.

Ísfisktogarinn Bergey VE kom til Vestmannaeyja síðdegis í gær með fullfermi og systurskipið Vestmannaey VE kom þangað sl. nótt sömuleiðis með fullfermi. Í morgun ræddi heimasíða Síldarvinnslunnar stuttlega við Jón Valgeirsson skipstjóra á Bergey og Birgi Þór Sverrisson skipstjóra á Vestmannaey. Jón sagði að vel hefði gengið að veiða í blíðskaparveðri. „Við vorum mest á Pétursey og Vík. Fengum þorsk á Pétursey og blöndu af þorski og ýsu á Vík. Síðan fórum við á Kötlugrunn og þar var aðeins karfi. Það er stígandi í veiðinni enda er hinn hefðbundni vertíðartími að nálgast,“ segir Jón.

Birgir Þór tekur undir með Jóni og segir að fiskgengd sé að aukast. „Við vorum á Pétursey og Vík og það gekk ljómandi vel að fiska. Vertíðarkrafturinn á samt eftir að koma í þetta en það koma góðar gusur,“ segir Birgir Þór.

Bæði skipin halda til veiða á ný síðdegis á morgun og gert er ráð fyrir að þau komi síðan til löndunar á sunnudag.

Nýjustu fréttir

Eyjar liðins tíma lifna við – 2. þáttur
Vikan í Eyjum: Verklag bæjarins, hafnarmál og menningarlíf
Atli Steinn fór á kostum þegar ÍBV lagði Stjörnuna að velli
Sebastiano Caboto við dýpkun í Vestmannaeyjahöfn – uppfært
Norðurljósin settu svip á hrekkjavökuna í Eyjum
Engin fyrirheit um fjármögnun nýs dráttarbáts
Eyjamenn vilja fylgja eftir góðum útisigri
Grikk eða gott í Eyjum – myndir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.