�?ægilegt hjá Eyjamönnum
ÍBV vann auðveld­an sig­ur á Sel­fyss­ing­um í Olís­deild karla í hand­bolta í gærkvöldi. Loka­töl­ur í Valla­skóla á Sel­fossi urðu 27:36. Mbl.is greinir frá.
Eyja­menn voru alls­ráðandi á vell­in­um í fyrri hálfleik. �?eir spiluðu iðulega með sjö manna sókn og hvíldu mark­mann­inn en lyk­ill­inn að góðu for­skoti þeirra í leik­hléi var frá­bær varn­ar­leik­ur. Eitt­hvað sem Sel­fyss­ing­ar voru ekki til­bún­ir að mæta. ÍBV náði mest tíu marka for­skoti í fyrri hálfleik en staðan var 11:20 í leik­hléi.
Seinni hálfleik­ur­inn var mun jafn­ari en eft­ir rúm­ar tólf mín­út­ur var mun­ur­inn orðinn tólf mörk og ljóst að Sel­fyss­ing­ar væru aldrei að fara að koma sér inn í leik­inn. Liðin kláruðu leiktím­ann án þess að leggja of mikið á sig. Lít­il skemmt­un þar.
Grét­ar �?ór Eyþórs­son var marka­hæst­ur Eyja­manna með 9 mörk, Theo­dór Sig­ur­björns­son skoraði 8/�??2 og Sig­ur­berg­ur Sveins­son 8. Stephen Niel­sen var frá­bær í mark­inu og varði 16 skot.
Hjá heima­mönn­um var Teit­ur �?rn Ein­ars­son lang­marka­hæst­ur með 10/�??4 mörk. Báðir markverðir Sel­foss, Helgi Hlyns­son og Ein­ar Vil­mund­ar­son, vörðu fjög­ur skot í leikn­um, sam­tals átta.

Nýjustu fréttir

ÍBV hefur leik í Bestu deildinni – tekur á móti FH á Hásteinsvelli
Flugvél frá Icelandair flaug óvenju lágt yfir Eyjum
Lækkandi ölduhæð og Álfsnesið á leiðinni
Spurt og svarað: Erlingur frá Eyjalistanum
Sandra náði áfanga með íslenska landsliðinu
Með fullfermi eftir örstutta túra
Friðrik Dór mætir á Þjóðhátíð
Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.