�?akklátar öllum sem gerðu stundina frábæra
�??Við höfum hitt gesti sem voru í útgáfuhófinu á laugardaginn. Margir voru kvíðnir og vissu ekki hvers vænta mætti. En umgjörðin öll varð til þess að fólki leið vel, myndir sem rúlluðu á skjávarpa, söngurinn hjá Unni og Simma, það sem lesið var úr bókinni og svo fallegar veitingar og gott samfélag,�?? segja þær Oddný Garðarsdóttir, Vera Björk Einarsdóttir og �?óranna Sigurbergsdóttir sem á laugardaginn kynntu bók sína, Móðir Missir Máttur í Sagnheimum. Gestir voru á annað hundrað.
�?ær segjast þakklátar fyrir hlýhug frá Helgu Hallbergsdóttur í Sagnheimum, Kára Bjarnasyni á Bókasafninu og Erlu í Eymundsson sem og öllum gestum sem gerðu stundina frábæra. �??Við höfum fengið viðbrögð frá fólki sem hefur fengið bókina í hendur. Sumir lesa smá kafla í einu en aðrir lesa hana frá upphafi til enda. Bókin er um sorglegt efni og er líklegt að efnið ýfi upp eigin sorgir hjá lesandanum. �?að er gott að gefa því tíma og það er lækning í því að gráta. Lækningu er að finna bæði í einrúmi og með því að tala við aðra. Í Fjallræðunni stendur: Sælir eru syrgjendur því þeir munu huggaðir verða. Matt 5.4. �?essi orð hafa ekki alltaf verið auðskilin. En fyrir okkur sem höfum komið fram með sorgina þá höfum við fengið að finna huggun sem nær yfir alla okkar veru til anda, sálar og líkama.�??
�?ær segjast hafa verið spurðar að því hvort bókin komi út sem hljóðbók og hvort hún verði þýdd á önnur tungumál. �??Guðrún Erlingsdóttir, vinkona okkar ræddi við okkur þrjár og mun viðtalið birtast í Morgunblaðinu á morgun, fimmtudag. En Guðrún er Aglowkona og blaðamannanemi.
�?tgáfuhóf verður síðan laugardaginn 9. desember kl. 13.00 í Kirkju-
húsinu á vegum Skálholtsútgáfu.�??

Nýjustu fréttir

Eyjakonur áfram á sigurbraut – Unnu Val á Hásteinsvelli
Tyrkjaránsganga Sögusetursins 1627
Einn túr eftir fyrir sumarstopp
NovaFest á Vöruhúsinu á Þjóðhátíð
ÍBV tekur á móti Val í kvöld
Rafmótorinn tilbúinn – Herjólfur úr áætlun í allt að fjóra sólarhringa
Óboðnir gestir undir yfirborðinu
Níu lið frá ÍBV tóku þátt í Símamótinu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.