Á morgun, laugardag verður myndin Breki sýnd í Bæjarleikhúsinu ásamt sjónvarpsmyndinni Á sjó. Breki er stuttmynd og lokaverkefni Haraldar Ara Karlssonar sem útskrifaðist sem leikari og kvikmyndagerðarmaður frá Kvikmyndaskóla Íslands í vor. Myndin fjallar um það þegar Haraldur Ari missir föður sinn, aðeins fimm ára gamall.