Thelma Rós ráðinn verkefnastjóri í öldrunarþjónustu

Staða verkefnastjóra í öldrunarþjónustu var auglýst laus til umsóknar í maí sl. Verkefnastjóri í öldrunarþjónustu vinnur með þróun, samhæfingu, eftirlit og sérhæfingu í málaflokki öldrunarmála í samráði við yfirmann og í samræmi við stefnumótun sveitarfélagsins, leiðarljós og markmið fjölskyldu- og fræðslusviðs.

Samtals sóttu fjórir umsækjendur um stöðu verkefnastjóra í öldrunarþjónustu hjá fjölskyldu- og fræðslusviði. Eftir því sem fram kemur í frétt á vef Vestmannaeyjabæjar. Umsóknir voru metnar út frá þeim þáttum sem fram komu í auglýsingu og vóg menntum, starfsreynsla, áhugi og þekking á öldrunarþjónustu þar mest. Allir umsækjendur voru kallaðir í viðtal. Framkvæmdastjóri sviðs fór yfir umsóknir og sá um viðtölin.

Við mat á umsækjendum kom Thelma Rós Tómasdóttir með hæsta vægi. Vó þar mest menntun hennar og starfsreynsla en Thelma sem er með BS í hjúkrunarfræði er að auki með diplómanám á meistarastigi í öldrunar- og heimahjúkrun auk viðbótar námskeiða í öldrunarráðgjöf og heilabilun. Thelma hefur starfað við þjónustu við aldraða frá 2014 og starfar í dag hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSU) Vestmannaeyjum bæði á heilsugæslu og í heimahjúkrun. Hefur hún reynslu af utanumhaldi og skipulagi heimahjúkrunar og þverfaglegu starfi við önnur þjónustustig aldraðra og við aðstandendur.

Nýjustu fréttir

Sunnudagsmorgunn með alþjóðlegum blæ
Um 8000 farþegar með tíu skemmtiferðaskipum
Tvö skemmtiferðaskip í blíðunni í Vestmannaeyjum
Fyrstu spár lofa góðu fyrir Þjóðhátíð
Skiptu 3.000 tonnum af makríl fyrir 1.400 tonn af þorski
Draumurinn um bikarúrslit hjá ÍBV úti – Tap gegn Þrótti R. á útivelli
Eyjamenn vilja geta keypt Laxey-lax
Vestmannaeyskt námsefni nú fáanlegt til útláns
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.