�?ess vegna er ég með
�?g hef lengi velt því fyrir mér að taka þátt í stjórnmálum og má rekja þann áhuga til þess að ég bý í bæjarfélagi þar sem fólkið gerir kröfu um sterka grunnþjónustu. Breytingar og bæting á þjónustu undanfarin kjörtímabil hefur ekki aðeins verið til fyrirmyndar heldur hafa þessar breytingar verið unnar samfara niðurgreiðslu mikilla skulda sem lágu á bæjarsjóði. Ekki geta mörg sveitarfélög á Íslandi stært sig af sambærilegum, hvað þá betri árangri. �?etta starf hafa bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leitt og það í góðu samstarfi við bæjarfulltrúa úr öðrum flokkum sem er heldur ekki sjálfsagt. Síðasta kjörtímabil einkenndist af góðu samstarfi minnihluta og meirihluta og er það eitthvað sem ég kann að meta.
Í alvöru hugað að fjölskyldufólki
Ef við horfum til verkefna kjörtímabilsins hef ég einna helst orðið var við árangur í flokki fræðslu- og fjölskyldumála. Fyrir fjölskyldumann eins og mig hefur veruleg lækkun leikskólagjalda verið mikil búbót fyrir mig og mína fjölskyldu og verið er að bæta enn frekar við þjónustuna á Kirkjugerði með byggingu nýrrar deildar. Einnig fékk fjölskylda mín að njóta þess hve vel er stutt við þá sem ekki hafa fengið leikskólapláss með niðurgreiðslum. Vel er stutt við þá sem þurfa að vera heima með börnum sínum á meðan beðið er eftir plássi og niðurgreiðsla veitt þeim sem nýta dagforeldra. �?essu til viðbótar má nefna frístundastyrkinn sem nemur kr. 25.000 á barn á ári. Svo dæmi séu tekin kemur það hátt til móts við greiðslu fyrir eina önn í hljóðfæranámi við Tónlistarskólann og hjálpar vel á móti æfingagjöldum hjá ÍBV sem og öðru tómstundarstarfi.
Mikil þróun atvinnulífs með framtíð Vestmannaeyja í huga
Ef við horfum til atvinnulífsins er gríðarleg uppbygging á Fiskiðju- og Ísfélagsreitnum og hátt í 30 nýjar íbúðir í uppbyggingu á svæðinu. Námsframboð verið aukið á háskólastigi og aðstaða bætt í nýju �?ekkingarsetri. �?ar ber hæst nám í haftengdri nýsköpun, en nú þegar eru nemendur úr því námi farnir að stofna fyrirtæki. Ofan á allt þetta er Merlin Entertainment á leiðinni með hvali sem að mínum dómi er mjög spennandi verkefni sem mun leiða af sér fjölda starfa.
Atvinnulífið í Vestmannaeyjum ber þess merki að Eyjamenn bera traust til grunnþjónustunnar. �?að má best sjá á því að fara um götur eins og Vestmannabraut frá Skólavegi og upp á Kirkjuveg og svo þaðan frá Hilmisgötu, Bárugötu og út á Strandveg. Á þessum spotta er ég ekki lengi að telja upp 15 vestmannaeysk fyrirtæki. �?jónustustigið er ofboðslega hátt enda gerum við kröfur. �?g sé það vel í samskiptum við aðkomufólk að þetta þykir ekki eðlilegt þó okkur kunni að finnast það. En það er svo sem ekki mikið að marka okkur alltaf. Okkur finnst til að mynda ekkert eðlilegra en að sjá tvö eldfjöll hlið við hlið þegar við drögum frá gluggum að morgni og hugsum að hvergi myndum við annars staðar vilja vera.
Eins manns land eða samstilltur hópur?
�?ví er ekki að neita að undanfarnar vikur hafa verið í meira lagi leiðinlegar þegar horft er til átaka og klofnings innan Sjálfstæðisflokksins. �?g sjálfur hef farið í margra hringi í þessum málum og rætt við góða vini með ólík sjónarmið. Sýnin á hlutina er einfaldlega svört og hvít og nú þegar ljóst er að það verður klofningsframboð er hætt við að komandi kjörtímabil
einkennist af átökum. Af ólíkum sýnum litast sú umræða. Fyrir 16 árum síðan lauk kosningum á þann veg að einn flokkur var í oddastöðu og úr varð eitt mesta átakakjörtímabil í manna minnum þar sem meirihlutinn sprakk tvisvar. �?að má e.t.v. taka þessu sem hræðsluáróðri. Gott og vel en ég hræðist sannarlega að þetta verði raunveruleikinn. Jafnt traustir sjálfstæðismenn sem aðrir bera ábyrgð á því hvernig málin hafa þróast.
�?g hef kosið að líta til þeirra góðu verka sem unnin hafa verið undanfarið kjörtímabil og tel ómögulegt að við værum á þeim stað sem við erum á nú án þess að allir bæjarfulltrúar og nefndarfólk hafi unnið að fullum heilindum fyrir hagsmuni allra bæjarbúa. Alltaf má deila um aðferðir en þegar ég hef séð halla á hlutina hefur ekki verið mikið mál að ræða það beint og skýrt við bæjarfulltrúa eða bæjarstjóra og fá úr hlutunum skorið og svo er manni þakkað fyrir hreinskilnina.
�?að sem að mínu mati hefði mátt gera betur á þessu kjörtímabili sem er að líða undir lok var að halda betur að bæjarbúum því sem vel var gert og auka með því meðvitund bæjarbúa á öflugri vinnu. Slíkt skilar jákvæðri og uppbyggilegri sýn á fallegar og blómlegar Vestmannaeyjar.
Setjum X við D í komandi sveitarstjórnarkosningum
Gísli Stefánsson
Frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins í sveitarstjórnarkosningunum 2018

Nýjustu fréttir

Sjómennskan í blóðinu nýtist í tónlistinni
Grípa þarf hjálpina þegar hún býðst
Næsta skref hjá Eyjagöngum: Borinn kominn á Landeyjasand
Skipað í ráð og nefndir Vestmannaeyjabæjar
„Fjörutíu árum síðar – með þakklæti til FÍV“
Þrír reynslumiklir sjómenn heiðraðir á Sjómannadaginn
Kristín Klara spilaði í Sundsvall með u-19 ára landsliðinu
Æskudraumur Díönu Daggar rættist

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.