Þjóðhátíðarleikur á Hásteinsvelli í dag - Fram mætir í heimsókn
Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

ÍBV tekur á móti Fram á Hásteinsvelli í fyrsta leik 17. umferðar Bestu deild karla í dag. Flautað verður til leiks klukkan 14:00.

Eyjamenn eru í áttunda sæti deildarinnar með 16 stig eftir 16 leiki. Fram situr í þriðja sæti með 34 stig og hefur því nokkuð mikið forskot á ÍBV.

Leikurinn skiptir Eyjamenn miklu máli í þéttri baráttu um miðja deild. Aðeins þrjú stig skilja ÍBV í áttunda sæti og Val og Keflavík, sem eru jöfn með 19 stig í fimmta og sjötta sæti.

Það má búast við að fjölmennt verði á Hásteinsvelli í dag þar sem mikið af fólki er í Eyjum á Þjóðhátíð.

17. umferð Bestu deildar karla:

Laugardagur 1. ágúst 14:00 ÍBV – Fram

Sunnudagur 2. ágúst 14:00 ÍA – Víkingur R. 

Mánudagur 3. ágúst 19:15 Valur – Stjarnan

Þriðjudagur 4. ágúst 18:30 Þór – Breiðablik

Miðvikudagur 5. ágúst 18:00 Keflavík – KA

Miðvikudagur 5. Ágúst 19:15 FH – KR

Nýjustu fréttir

Opna fjöldahjálparstöð í Arnardrangi á laugardag
Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi – Samfylkingin styrkir stöðu sína
Staðfesta synjun á gagnabeiðni Eyjafrétta
Leggja til tvöfalt meiri makrílveiði á næsta ári
Góður afli en erfiðlega gekk að finna ýsu
Framkvæmdir víða um bæinn – myndband
Má skipta liði?
Síldarveiðar í fullum gangi hjá Vinnslustöðinni
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.