Áhöfn Þórs, björgunarskips Slysavarnafélagsins Landsbjargar í Vestmannaeyjum, var boðuð út í gærmorgun til þess að sækja smábát við Kötlutanga. Smábáturinn varð vélarvana við Kötlutanga rétt undan Vík í Mýrdal og rak undan hægum vindi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsbjörg.
Björgunarsveitin var boðuð út kl. 11 og tók um eina og hálfa klukkustund að mæta á vettvang. Dráttartaug var komið frá Þór í bátinn og síðan siglt til Vestmannaeyjahafnar.
Einn maður er um borð í smábátnum. Ekki er víst hvort hann hafi verið að strandveiðum eða að flytja bátinn á milli staða. Þór, sem er eitt nýrra björgunarskipa Slysavarnafélagsins, var fljótur á vettvang, með ganghraða hátt í 30 sjómílur. Það hamlaði heldur ekki för Þórs að sjólag var gott.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.