Lokahóf meistaraflokka ÍBV í knattspyrnu var haldið sl. laugardag. Þar var Pepsi Max deildar sætum liðanna vel fagnað. Veittar voru ýmsar viðurkenningar en þar á meðal var Fréttabikarinn. Það voru Þóra Björg Stefánsdóttir og Guðjón Ernir Hrafnkellsson sem fengu viðurkenninguna að þessu sinn.
Þóra Björg, sem er sautján ára, hefur nú leikið 42 leiki fyrir meistaraflokk ÍBV þrátt fyrir ungan aldur. Hún hefur gengið í gegnum alla yngri flokka ÍBV og er fyrirmynd fyrir ungar stúlkur hjá félaginu. Þóra hefur tekið þátt í landsliðsverkefnum með Íslandi bæði í handbolta og knattspyrnu í sumar.
Þóra lék 16 leiki í deildinni fyrir ÍBV og skoraði í þeim sjö mörk, auk þess að gefa tvær stoðsendingar. Þóra á framtíðina fyrir sér og voru mörk hennar liðinu mikilvæg í sumar, þegar liðið endaði í 7. sæti Pepsi Max deildarinnar. Þóra hefur tekið miklum framförum frá því að hún lék fyrsta meistaraflokksleik sinn árið 2019.
Guðjón Ernir, sem er tvítugur, kom til ÍBV fyrir síðustu leiktíð að austan en hann lét fljótt af sér kveða í hægri bakverðinum. Hann reyndist happafengur fyrir félagið og lék hann 21 af 22 deildarleikjum ÍBV í ár er liðið vann sér sæti í deild þeirra bestu.
Guðjón átti fimm stoðsendingar og skoraði eitt mark, þegar hann tryggði sigur á Þór á Hásteinsvelli með skalla eftir frábæran sprett í uppbótartíma. Hann sýndi góð tilþrif jafnt í vörn sem sókn og hefur tekið miklum framförum frá því að henn gekk til liðs við ÍBV.
Eins og flestir vita tryggðu strákarnir í meistaraflokki sér sæti á meðal þeirra bestu í Pepsi Max deild karla næsta sumar með því að lenda í 2. sæti Lengjudeildarinnar og meistaraflokkur kvenna hélt sínu sæti á meðal þeirra bestu í Pepsi Max deild kvenna en þær höfnuðu í 7. sæti deildarinnar, segir í frétt á vefsíðu ÍBV-íþróttafélags. Ian Jeffs var heiðraður, en hann mun hverfa á braut eftir langan og farsælan feril sem leikmaður og þjálfari hjá félaginu.
Júlíana Sveinsdóttir og Felix Örn Friðriksson voru heiðruð fyrir að ná 100 leikum, Júlíana í sumar en Felix í fyrrasumar. Þar sem ekki var hægt að halda lokahóf eftir tímabilið í fyrra þá nýtti knattspyrnuráð karla tækifærið og afhenti Jóni Ingasyni viðurkenningu fyrir að vera leikmaður ársins 2020 og Tómasi Bent Magnússyni viðurkenningu fyrir að vera efnilegasti leikmaðurinn 2020.
Veittar voru eftirtaldar viðurkenningar til elstu flokka félagsins.
Meistaraflokkur kvenna:
Besti leikmaðurinn: Olga Sevcova
ÍBV-ari: Clara Sigurðardóttir
Markahæsti leikmaðurinn: Viktorija Zaicikova
Fréttabikarinn / efnilegasti leikmaðurinn: Þóra Björg Stefánsdóttir
Meistaraflokkur karla:
Besti leikmaðurinn: Eiður Aron Sigurbjörnsson
ÍBV-ari: Guðjón Pétur Lýðsson
Markahæsti leikmaðurinn: Sito
Fréttabikarinn / efnilegasti leikmaðurinn: Guðjón Ernir Hrafnkellsson
2. flokkur kvenna:
Besti leikmaðurinn: Helena Jónsdóttir
ÍBV-ari: Thelma Sól Óðinsdóttir
Efnilegasti leikmaðurinn: Ragna Sara Magnúsdóttir
Markahæsti leikmaðurinn: Selma Björt Sigursveinsdóttir
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst