Þóranna Halldórsdóttir ráðin forstöðumaður Heimaeyjar – vinnu- og hæfingarstöðvar

Vestmannaeyjabær hefur ráðið Þórönnu Halldórsdóttur í starf forstöðumanns Heimaeyjar – vinnu- og hæfingarstöð. Þóranna lauk MPM námi í verkefnastjórnun frá Háskóla Íslands árið 2010, BA gráðu í táknmálsfræði/táknmálstúlkun frá sama skóla árið 2007 og B.Ed. gráðu í grunnskólakennarafræðum frá Kennaraháskóla Íslands árið 2003.  Þóranna starfaði síðast sem ráðgjafi hjá VIRK. Áður vann hún um tíma sem forstöðumaður Kertaverksmiðjunnar Heimaeyjar og sem AMS fulltrúi hjá Vestmannaeyjabæ. Þar áður vann hún sem táknmálstúlkur og táknmálskennari hjá Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra.

Þóranna mun hefja störf sem forstöðumaður Heimaeyjar á næstu dögum. Umsjón með ráðningunni hafði framkvæmdastjóri fjölskyldu- og fræðslusviðs Vestmannaeyjabæjar. Hagvangur veitti ráðgjöf við ráðningaferlið eftir að umsóknir höfðu borist.

Alls sóttu fimm um starfið og voru allir boðaðir í atvinnuviðtal. Ferlið við mat á umsóknum samanstóð m.a. af hæfnismati á umsækjendum byggt á innsendum umsóknargögnum, viðtölum og umsögnum.

Nýjustu fréttir

Staðfesta synjun á gagnabeiðni Eyjafrétta
Leggja til tvöfalt meiri makrílveiði á næsta ári
Góður afli en erfiðlega gekk að finna ýsu
Framkvæmdir víða um bæinn – myndband
Má skipta liði?
Síldarveiðar í fullum gangi hjá Vinnslustöðinni
Emil og félagar í U17 áfram í næstu umferð undankeppni EM 2027
Íris hvetur þingmenn til að skipuleggja ferðina út frá „löngu leiðinni“
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.