Þórir Baldursson í Eldheimum í kvöld
Gengið, Maggi, Tóti, Júlíanna, Unnur, Simmi og Diddi.

Fimmtudagskvöldið í Eldheimum á Goslokahátíðinni verður tileinkað vinsælum lögum frá Eyjum og sömuleiðis lögum annars staðar frá sem nutu vinsælda allt frá tímum Surtseyjargossins og fram yfir Goslokin 1973.

Unnur Ólafsdóttir, Júlíanna S. Andersen, Þórarinn Ólason og Magnús R. Einarsson verða söngvarar kvöldsins. Kristinn Jónsson og Sigurmundur G. Einarsson sjá um undirleik ásamt Magnúsi. En sérstakur gestur þetta fimmtudagskvöld verður Þórir Baldursson sem leikur á Hammond orgel.

 

 

Þórir er einn af okkar snjöllustu tónlistarmönnum.

 

Þórir er einn af okkar snjöllustu tónlistarmönnum og einstakur heiður að fá hann til liðs við tónleikana á Goslokahátíðinni. Tónleikarnir hefjast 20:30, húsið verður opnað 20:00. Takmarkað sætaframboð, en aðgangur kostar aðeins 4,900kr.

 

 

Nýjustu fréttir

Grikk eða gott í Eyjum – myndir
Erlingur og lærisveinar áfram á sigurbraut í Þýskalandi
Konunglegt drama í Sagnheimum – hver er dularfulli Íslendingurinn?
Völundarhús og sögustund í myrkri á Bókasafninu
Fimmti sigur ÍBV í röð kom gegn Gróttu
250 rúmmetra tankur kominn á sinn stað
SASS vill fresta skattahækkunum og meta áhrifin á Suðurland
Að kveikja neistann – að vekja áhuga og ástríðu barna í námi og skólastarfi  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.