Þorskkvótinn dregst saman um átta þúsund tonn
DSC_8031
Eyjafréttir/Eyjar.net: ÓPF

Fiskistofa hefur úthlutað aflamarki á fiskveiðiskip fyrir fiskveiðiárið 2025/2026 og fengu 456 skip í eigu 377 aðila úthlutað. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Fiskistofu.

Þar segir jafnframt að heildarúthlutun sé rúm 287 þúsund þorskígildistonn. Úthlutun í þorski er rúm 160 þúsund þorskígildistonn en var tæp 168 þúsund þorskígildistonn á síðasta fiskveiðiári. Úthlutun í ýsu er tæp 44 þúsund þorskígildistonn og hækkar um 5 þúsund þorskígildistonn milli ára.

Fyrirtæki með hæstu úthlutunina:

  • Brim hf. 9,16%

  • Samherji Ísland hf. 8,58%

  • Ísfélag hf. 6,61%

  • Fisk Seafood ehf. 6,36%

  • Vísir ehf. 4,18%

Skip með hæstu úthlutunina:

  • Sólberg ÓF 1 (2917), Ísfélag hf. með 10.430 þorskígildistonn.

  • Guðmundur í Nesi RE 13 (2626), Útgerðarfélag Reykjavíkur hf. með 9.109 þorskígildistonn.

  • Drangey SK 2 (2893), FISK-Seafood ehf. með 6.442 þorskígildistonn.

Nýjustu fréttir

Óþolandi óvissa með samgöngur til Vestmannaeyja
Fyrirliðinn lék sinn 300. deildarleik
Baldur leysir Herjólf af
Eyjafréttir standa við „samsuðuna“
Vonast til að dýpkun hefjist á fimmtudag
Ung eyjamær sigraði upplestrarkeppnina
Fiskeldið á fleygiferð í byrjun árs
„Gengið eins og í sögu”
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.