Þorskurinn eltir síldina fyrir austan
bergey_opf
Myndin er tekin um borð í Bergey VE. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar Pétur Friðriksson

Bergey VE og Vestmannaey VE lönduðu samtals um 120 tonnum í Neskaupstað í gær, um 60 tonnum hvort skip. Skipin hafa að undanförnu landað þar tvisvar í viku en aflinn fer að mestu til vinnslu hjá Vísi í Grindavík.

Þetta kemur fram á heimasíðu Síldarvinnslunnar, sem ræddi við skipstjóra beggja skipanna. Þorskur var uppistaðan í aflanum og voru skipstjórarnir ánægðir með aflabrögðin þrátt fyrir heldur leiðinlegt veður á miðunum.

Þorskurinn eltir síldina

Jón Valgeirsson, skipstjóri á Bergey, sagði veiðina hafa gengið betur en hann bjóst við í stuttri veiðiferð. Skipið hélt út á sunnudagskvöld og sigldi beint á Vopnafjarðargrunn, þar sem fékkst þorskur og dálítil ýsa með.

Þaðan var haldið á Glettinganesflak í leit að meiri ýsu en einnig þar var þorskur meirihluti aflans.

„Þorskurinn er hérna fyrir austan að elta síldina og það er talsvert af honum en minna af ýsunni,“ sagði Jón. Veðrið setti þó svip sinn á túrinn. „Það var fræsingur í veðrinu í túrnum, sperringur að norðan og norðvestan,“ sagði hann.

Reikna með áframhaldandi veiðum fyrir austan

Birgir Þór Sverrisson, skipstjóri á Vestmannaey, hafði svipaða sögu að segja. Veiðiferðin hófst í suðurkantinum á Digranesflaki, þar sem skipið var í rúman sólarhring áður en haldið var á Glettinganesflak.

„Það var alls staðar reytingur en aflinn var mest þorskur. Við fórum út í góðu veðri en síðan var veðrið heldur leiðinlegt. Ég geri ráð fyrir að við verðum eitthvað áfram að veiðum hér fyrir austan,“ sagði Birgir Þór.

Nýjustu fréttir

Tíundubekkingar standa vaktina í skammdeginu
Nýtt fyrirkomulag á hrekkjavökunni
Þorskurinn eltir síldina fyrir austan
Bókasafnið – liðsfélagi í Kveikjum neistann
Óvenjulegir tónleikar í sundlauginni – myndir
Stjórnendur Herjólfs gestir á laugardagsfundi í Ásgarði
Safnahelgin formlega sett – myndir
Magnús Dagur tryggði ÍBV sigur á Víkingi á lokasekúndunum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.