Þrettándagleði með breyttu sniði

Þrettándagleði ÍBV verður með breyttu sniði þetta árið, en Grýla, Leppalúði og þeirra hyski eru komin í sjálfskipaða sóttkví og treysta sér ekki til byggða, þrátt fyrir mjööög háan aldur þá eru þau því miður ekki í forgang að fá bóluefni. Þetta kemur fram í frétt á vef ÍBV. En í sárabót þá munum við kveikja á kertunum á Molda og vera með flugeldasýningu eins og venjulega ásamt því að Jólasveinarnir munu horfa til byggða ofan af Há, til að geta veifað til barnanna miðvikudaginn 6. janúar kl. 19:00

Eyjamenn er einnig hvattir til að virða fjöldatakmarkanir og sóttvarnir, og vinsamlegast safnist ekki saman í hópum til að fylgjast með. Það myndi gleðja okkur ef þeir sem eiga Þrettándafána myndu flagga þeim þennan dag, ef ykkur vantar einn slíkan þá eigum við nokkra til sölu á skrifstofu félagsins í Týsheimilinu.

Njótum í garðinum heima og höldum Þrettándakaffi með jólakúlunni okkar!
Þrettándakveðja
ÍBV Íþróttafélag

Nýjustu fréttir

Trúnaður má ekki verða skjól fyrir þögn
Gular veðurviðvaranir fyrir Suðurland og Faxaflóa
Þekkirðu leikarana? – Saga Leikfélags Vestmannaeyja lifnar við
Vinnslustöðin komin með um 11.000 tonn af síld
Um 70% foreldra sögðust finna mun
Omar Sowe yfirgefur ÍBV
Jólagleði í skókassa til Úkraínu
Helgi Rúnar hefur fylgst með Kveikjum neistann frá upphafi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.