Þrír af okkar fremstu söngvurum syngja í Eldheimum
Kristinn Sigmundsson, Gissur Páll Gissurarson og Kolbeinn Jón Ketilsson sameina krafta sína ásamt Helgu Bryndísi Magnúsdóttur píanóleikara

Tónlistarunnendur í Vestmannaeyjum fá einstakt tækifæri laugardaginn 4. júlí kl. 17.00 þegar þrír af fremstu óperusöngvurum landsins stíga á svið í Eldheimum ásamt píanóleikaranum Helgu Bryndísi Magnúsdóttur. Á efnisskránni verða þekkt ítölsk og íslensk sönglög og annað létt og skemmtilegt klassískt efni flutt af listafólki sem hefur getið sér gott orð bæði hérlendis og erlendis.

Fram koma bassasöngvarinn Kristinn Sigmundsson, sem er einn virtasti söngvari Íslands fyrr og síðar, tenórarnir Gissur Páll Gissurarson og Kolbeinn Jón Ketilsson, auk Helgu Bryndísar Magnúsdóttur, sem er meðal fremstu píanóleikara landsins.

Glæsilegir alþjóðlegir ferlar

Kristinn Sigmundsson á að baki glæsilegan alþjóðlegan feril og hefur um áratugaskeið komið fram á stærstu óperusviðum heims. Kolbeinn Jón Ketilsson hefur einnig starfað við mörg af virtustu óperuhúsum Evrópu og komið reglulega fram á tónleikum og í óperuuppfærslum hér á landi.

Gissur Páll Gissurarson hefur á undanförnum árum skipað sér í hóp fremstu tenóra landsins og vakið athygli fyrir söng sinn í óperum og á fjölmörgum tónleikum, meðal annars á vinsælum jólatónleikum Björgvins Halldórssonar.

Eyjatengingin sterk

Vestmanneyingar eiga sérstaka tengingu við tónleikana, því bæði Helga Bryndís Magnúsdóttir og Gissur Páll Gissurarson ólust upp í Eyjum og hlakka til að koma heim og gleðja heimafólk með tónlist sinni.

Að sögn Kolbeins Jóns Ketilssonar kviknaði hugmyndin að tónleikunum af löngun flytjendanna til að færa Eyjamönnum vandaða og metnaðarfulla tónlistarupplifun.

„Okkur langaði að koma saman og halda glæsilega tónleika í Vestmannaeyjum. Það verður sannkölluð hátíðarstund þar sem áheyrendur fá að njóta fjölbreyttrar dagskrár með aríum, sönglögum og öðrum sígildum perlum. Við hlökkum öll mikið til að syngja fyrir Eyjamenn,“ segir Kolbeinn.

 

Nýjustu fréttir

Bærinn vissi ekki af úttektinni á Hraunbúðum
Lottóappið heldur áfram að gleðja landsmenn!
Omar Sowe fær tveggja leikja bann
Háski og félagar senda frá sér þjóðhátíðarlagið „Væntanlega“
Hópferð á undanúrslitaleikinn hjá stelpunum á morgun
Fagmönnun langt undir lágmarki á Hraunbúðum
Baldur flutti nærri ársfjölda Breiðafjarðar á 45 dögum
Þessi föstudagur á Þjóðhátíð
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.