Karlalið ÍBV í fótbolta tók á móti KR í þriðju umferð Bestu deildar karla á Hásteinsvelli í dag. Eyjamenn máttu þola þungt tap en leiknum lauk með 2-6 sigri KR.
KR setti tóninn í upphafi leiks og komust í 0-1 strax á fimmtu mínútu með marki frá Arnóri Yngva Traustasyni sem skoraði af stuttu færi. KR bætti þremur mörkum við fyrir hálfleiksflautið. Hrafn Tómasson kom þeim í 0-2 á 17. mínútu með frábæru marki utan af velli. Aron Sigurðarson bætti við þriðja markinu eftir hálftíma leik með góðu skoti fyrir utan teig. Gabríel Hrannar Eyjólfsson kom KR í 0-4 í uppbótartíma fyrri hálfleiks eftir misheppnaða hreinsun ÍBV. Staðan 0-4 í hálfleik.
ÍBV gerði þrefalda breytingu í hálfleik en KR-ingar byrjuðu síðari hálfleikinn einnig betur. Aron Sigurðarson skoraði sitt annað mark á 60. mínútu leiksins eftir gott samspil. Aðeins tveimur mínútum síðar bætti Alexander Rafn Pálmason sjötta marki KR við með hnitmiðuðu skoti úr teignum. Eyjamenn náðu aðeins að klóra í bakkann í síðari hálfleik.Viggó Valgeirsson skoraði gott mark af löngu færi eftir mistök markvarðar KR á 65. mínútu og Sesar Örn Harðarson skoraði annað mark ÍBV á 77. mínútu eftir flotta sókn Eyjamanna. Halldór Jón Sigurður Þórðarson átt sendingu í gegn á Sesar sem tók glæsilega á móti boltanum og kláraði fagmannlega fram hjá Halldóri Snæ, markverði KR. Lokatölur leiksins 2-6.
Eyjamenn eru eftir leikinn á botni deildarinnar með eitt stig á meðan KR er á toppnum með fullt hús stiga, níu stig.
Næsti leikur ÍBV er gegn Fram á Lambhagavellinum, mánudaginn 27. apríl kl. 18:00.