�?yngsti dvergur í heimi og léttasti tveggja metra maðurinn í ÍBV?
ÍBV mættir ísraelska liðinu Maccabi frá borginni Rishon Lezion í Eyjum um helgina. Leikirnir fara fram laugardaginn klukkan 16:00 og sunnudaginn klukkan 14:00 en vegna ástandsins í Ísrael, fara báðir leikirnir fram í Eyjum. Evrópska handknattleikssambandið er með leikmannalista liðanna tveggja á vef sínum en gaman er að skoða leikmannalista ÍBV því þar kemur í ljós að ÍBV virðist tefla fram þyngsta dvergi heims og léttasta tveggja metra manninum sem fyrir finnst. �?annig er Sindri Haraldsson sagður 112 cm á hæð og 193 kg, sem er kannski ekkert sérstaklega gott fyrir línu- og varnarmann. Stórskyttan Magnús Stefánsson, frá Fagraskógi er réttilega sagður vera 201 cm á hæð en aðeins 9 kg og hlýtur því að vera léttasti tveggja metra maður heims. Ekki amalegt það.
En stuðningsmenn ÍBV þurfa ekkert að örvænta. Heimakletturinn Sindri hefur ekki hlaupið saman og út til hliðar því væntanlega hefur tölunum verið snúið við, 193 cm á hæð og 112 kg sem er gott fyrir línu- og varnarmann. Magnús hefur heldur ekki verið í ofur megrun í sumar, líklega vantar bara síðari tölustafinn í þyngdinni. En hugsanlega blekkir þetta Ísraelsmenn eitthvað. Hver veit?

Nýjustu fréttir

Hafnaði nær öllum verkefnum í júlí til að undirbúa Brekkusönginn
Vestmannaeyjabær áfrýjar sýknudómi vegna vatnslagnarinnar
Frá Portúgal til Vestmannaeyja
„Við erum orðin skuldlaus“
Vinnslustöðin styrkir stöðu sína í Portúgal
Herjólfur aftur í fulla áætlun á morgun
Góð spá og lokaspretturinn hafinn fyrir Þjóðhátíð
Hafbotnsmælingum lokið – Komnir niður á 136 metra í Landeyjasandi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.