�?yrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna sjúklings í Vestmannaeyjum
�?yrla Landhelgisgæslunnar, TF-GNÁ kom sjúklingi frá Vestmannaeyjum til Reykjavíkur í gærkvöld. �?etta kemur fram í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni.
Sjúkraflugvél hafði reynt að komast til Vestmannaeyja en þurfti frá að hverfa vegna veðuraðstæðna. �?ví barst stjórnstöð Landhelgisgæslunnar beiðni um þyrlu. Áhöfnin á TF-GNÁ var á leið á nætursjónaukaæfingu með björgunarskipi Slysavarnafélagsins Landsbjargar þegar beiðnin kom og var hún stödd á flugvelli Landhelgisgæslunnar.
Afar blint var á leiðinni og um tíma var óvíst hvort unnt yrði að lenda á flugvellinum í Vestmannaeyjum, en betur fór en á horfðist og tókst það að lokum.
Lenti þyrlan með sjúklinginn í Reykjavík rúmlega hálf átta í gær.

Visir.is greindi frá

Nýjustu fréttir

Þakkir frá Krabbavörn Vestmannaeyja
Deloitte tekur við endurskoðun Vestmannaeyjabæjar
Prjónuðu 83 húfur gegn einelti
Anita tekur við sem hjúkrunarstjóri heilsugæslunnar í Eyjum
Samfélagsstyrkur Krónunnar styður þjálfun barna í Vestmannaeyjum  
Bærinn krefst skýrra svara um NSL-4
Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.