Til fundar við Eldfell – lokaleiðsögn á laugardaginn

Nú eru síðustu forvöð að sjá hina áhugaverðu samsýningu innlendra og erlendra listamanna í Einarsstofu og Sagnheimum í Safnahúsinu, þar sem sýningin verður tekin niður eftir helgi.

Af því tilefni munu Vala Pálsdóttir, sýningarstjóri og Þorgerður Ólafsdóttir, myndlistamaður leiða gesti um sýninguna laugardaginn 21. október kl. 14. Að lokinni leiðsögn verður boðið upp á kaffi og spjall.

Á sýningunni er í fyrsta sinn dregið saman safn verka, bæði nýrra og eldri um Eldfell, eftir um tuttugu íslenska og erlenda listamenn, rithöfunda og fræðimenn sem hafa rannsakað Eldfell.

Sýningin var opnuð 9. september s.l. og hefur fengið góðar viðtökur.

“Við hvetjum alla til að nýta tækifærið og koma og sjá sýninguna, bæði þá sem hafa komið áður sem og hina sem ekki hafa gefið sér tíma til þessa,” segir í tilkynningu frá Sagnheimum.

Nýjustu fréttir

Óásættanlegt ástand í Landeyjahöfn
Mokstur á þjóðveginum til Vestmannaeyja
ÍBV fær ÍR í heimsókn
Sjálfstæðisflokkurinn – Utankjörfundar atkvæðagreiðsla í prófkjöri hafin
Sandra skoraði sjö mörk í frábærum sigri Íslands
Óhagsætt sjólag þegar nær dregur helgi
Hvað kostuðu þjóðlendukröfur ríkisins í Eyjum?
Bæjarráð ræddi stöðu dýpkunarmála í Landeyjahöfn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.