Sjómannadagurinn er runninn upp en hátíðahöld helgarinnar halda áfram. Reyndar var fyrsti dagskrárliðurinn klukkan 10:00 þegar fánar voru dregnir að húni en núna klukkan 13:00 verður Sjómannamessa í Landakirkju og í kjölfarið verður minningarathöfn við minnismerki hrapaðra og drukknaðra á lóð Landakirkju. Klukkan 15:00 verður svo hátíðardagskrá á Stakkó þar sem Lúðrasveitir Vestmannaeyja og Verkalýðsins leika. Ræðumaður Sjómannadagsins 2014 er Geir Jón �?órisson, fyrrum lögreglumaður og varaþingmaður. �?á verða veitt verðlaun og viðurkenningar, Leikfélag Vestmannaeyja verður á staðnum, hoppikastalar og ýmislegt fleira.
Strax eftir dagskrá á Stakkó, klukkan 16:00 mun Sigurgeir Jónsson segja stuttar skemmtisögur af sjómanninum Ása í Bæ í Safnheimum og Leikhúsbandið mun flytja nokkur af hans ógleymanlegu sjómannalögum.
Í kvöld verða svo tónleikar með Eyfa Kristjáns á Háaloftinu.