Tilkynning frá aðgerðastjórn - fjögur ný smit
DCIM100MEDIAYUN00052.jpg
\DCIM\100MEDIA\YUN00052.jpg

Fjórir hafa greinst smitaðir í viðbót og eru einstaklingar með staðfest smit því orðnir 51 í Vestmannaeyjum. Af 4 nýgreindum voru 3 þegar í sóttkví þegar smit greindist. Það er allra hagur að sem flestir nýgreindir séu komnir í sóttkví þegar þeir greinast enda eru þá færri og oft enginn í kringum þá sem er útsettur fyrir smiti. Smitrakningu er lokið fyrir öll þekkt smit. Fjöldi einstaklinga í sóttkví í Vestmannaeyjum er 577 og þá hafa 19 lokið sóttkví.

Smitaðir einstaklingar eiga að vera í einangrun og mega ekki fara út af heimili nema brýna nauðsyn beri til, s.s. til að sækja nauðsynlega heilbrigðisþjónustu, að höfðu samráði við lækni. Ástæða þessa er hætta á snerti- eða dropasmiti. Förum öll að leiðbeiningum og hlúum hvert að öðru.

Aðgerðastjórn

Nýjustu fréttir

„Mig langar eiginlega bara að verða söngvari“
Sigurður Arnar kveður ÍBV og semur við Val
Trúnaður má ekki verða skjól fyrir þögn
Gular veðurviðvaranir fyrir Suðurland og Faxaflóa
Þekkirðu leikarana? – Saga Leikfélags Vestmannaeyja lifnar við
Vinnslustöðin komin með um 11.000 tonn af síld
Um 70% foreldra sögðust finna mun
Omar Sowe yfirgefur ÍBV
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.