Tilkynning frá Styrktarsjóði Landakirkju
Landakirkja.

Styrktarsjóður Landakirkju veitir fólki sem hefur fasta búsetu í Eyjum aðstoð fyrir jólin og erum við byrjuð að taka við umsóknum um aðstoð.

Sjóðurinn getur að sjálfsögðu ekki starfað nema vegna velvildar fyrirtækja og einstaklinga sem hafa í gegnum árin verið afar rausnarleg í framlögum sínum og viljum við þakka þeim fjölmörgu sem styrkt hafa sjóðinn með framlögum sínum í gegnum tíðina.

Slíkt hefur leitt til þess að þau sem eiga erfitt með að ná endum saman hafa getað haldið gleðilegri jól en ella.

Prestar Landakirkju munu taka á móti fólki á skrifstofum sínum, og auðvitað er betra að vera fyrr en seinna á ferðinni, svo úthlutun geti farið sem fyrst fram í desember.

Fyrir þau sem vilja styðja styrktarsjóðinn er hægt að millifæra á eftirfarandi reikning:
Bnr. 0133-15-759
kt. 630321-0340

 

Guðmundur Örn Jónsson og Viðar Stefánsson, prestar í Landakirkju.

Nýjustu fréttir

Helgi Rúnar hefur fylgst með Kveikjum neistann frá upphafi
Hafsteinn Þórólfsson syngur eyjaperlur í Eldheimum
Allison Clark í úrvalsliði Bestu deildar kvenna hjá Fótbolta.net
Blásið til sóknar í tónlistinni
Jón Þór vill yfirferð á verklagi eftir úrskurðina
Skáknámskeið fyrir fullorðna byrjendur hefst í nóvember
Eyþór treystir verklagi bæjarins – aðrir oddvitar vísa til trúnaðar
Vísindin að baki Kveikjum neistann 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.