Tillögur umferðarhóps samþykktar
Starfshópurinn lagði m.a. til að einstefna verði á Hilmisgötu frá bílastæði við Arnardrang að Vestmannabraut.

Á fundi umhverfis- og skipulagsráðs í liðinni vikur var tekin til afgreiðslu tillögur umferðarhóps sem fundaði um miðjan síðasta mánuð. Þrjú mál voru á dagskrá sem hafði verið vísað til ráðsins frá umhverfis- og skipulagsráði:

1. Einstefna Bárustígs og Skólavegs milli Tangagötu og Strandvegs.
2. Umferð við Vigtartorg. Tilraunaverkefni einstefnu frá Tangagötu að Básaskersbryggju.
3. Umferðaröryggi á sumartíma.

Hópnum líst vel á einstefnu milli Tangagötu og Strandvegs við Bárustíg og Skólaveg. Hópurinn leggur einnig til að einstefna verði um Hilmisgötu frá bílastæði við Arnardragna að Vestmannabraut til að auka umferðaröryggi á svæðinu. Hópurinn mælir þó ekki með einstefnu frá Tangagötu að Básaskersbryggju og mælir með að rútustæði verði við timburgangstétt vestan við FES og við Tangagötu norðan Ægistgötu 2. og þaðan sem er austar á Tangagötu.

Til að bæta umferðaröryggi leggur hópurinn einnig til að þrengja við gangbrautir staðsettar við Vallargötu 4A, sunnan við Landakirkju á Kirkjuvegi, við Skólaveg 45 og milli Bessahrauns 22 og 24. Að lokum leggur hópurinn til að kláraður verður göngustígur frá Illugagötu að Íþróttamiðstöð yfir bílastæðin með gangbraut.

Umhverfis- og skipulagsráð samþykkti tillögur umferðarhóps og var framkvæmdastjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs falinn framgangur málsins. Fundargerð umferðarhóps má finna hér.

Nýjustu fréttir

Ísfélagið komið með tvo þriðju af loðnukvótanum
„Loðna með suðurströndinni og henni fylgir mikill fjöldi hvala”
5. bekkur kynnti sér loðnuna í uppsjávarvinnslu VSV
Kallar eftir tafarlausum úrbótum
Kokkurinn heldur áhöfninni gangandi  
Þegar þú lend­ir í svona ferðu að hugsa hlut­ina allt öðru­vísi
Álfsnes úr leik vegna bilunar
Trausti opnar kosningaskrifstofu í gamla TM Húsinu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.