Tímabundin verslun 66° Norður hefur gengið vel

Húsnæðið að Bárustígi 9 hefur hýst tímabundna verslun 66° Norður frá því á goslokum en verslunin mun loka nú að Þjóðhátíðinni lokinni. Þar má finna vörur sem einnig má finna á útsölumörkuðum útifatnaðarrisans en þó einnig nýrri flíkur. Eyjafréttir heyrðu í eyjamærinni Esther Bergsdóttur, starfsmann í verslun.

„Búðin hefur gengið mjög vel og hafa heimamenn og gestir verið duglegir að kíkja til okkar. Við opnuðum búðina rétt fyrir Goslokahátíð og þá var mjög fjölmennt í bænum. Þá vikuna kom mikið af fólki við hjá okkur til að kíkja á úrvalið og það hefur haldist þennan mánuð sem við höfum verið með opið” segir Esther sem þakkar fyrir góðar móttökur og vonar að allir skemmti sér vel og fallega um helgina.

Útivistarmerkið hefur sömuleiðis verið með „pop-up” bíl sem hefur komið á flestar útihátíðir landsins og er bíllinn nú mættur fyrir utan Sölku verslun, sem er endursöluaðili merkisins í Eyjum.

Verslunin er til húsa þar sem Salka verslun var áður.
Steinunn stendur vaktina.

Nýjustu fréttir

Allison Clark í úrvalsliði Bestu deildar kvenna hjá Fótbolta.net
Blásið til sóknar í tónlistinni
Jón Þór vill yfirferð á verklagi eftir úrskurðina
Skáknámskeið fyrir fullorðna byrjendur hefst í nóvember
Eyþór treystir verklagi bæjarins – aðrir oddvitar vísa til trúnaðar
Vísindin að baki Kveikjum neistann 
Grettir tekur við af Herði hjá Þekkingarsetrinu
Guðný Geirsdóttir leggur hanskana á hilluna
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.