Tímamót í iðn- og starfsnámi í Vestmannaeyjum
Tíu nemendur þreyttu sveinspróf í húsasmíði og stóðust það allir
Halldór Hjörleifsson, kennari með hluta af nemendum sem útskrifuðust.

Í fyrsta sinn var sveinspróf í húsasmíði haldið í Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum um sjómannadagshelgina. Alls þreyttu tíu nemendur prófið og stóðust það allir. Segir Helga Kristín Kolbeins, skólameistari FÍV, að um mikilvægan áfanga fyrir iðn- og starfsnám í Eyjum sé að ræða.

„Þetta eru mjög ánægjuleg tímamót fyrir skólann og samfélagið allt. Það hefur lengi verið markmið okkar að geta boðið upp á alla helstu þætti námsins hér í heimabyggð, þar á meðal sveinspróf,“ segir Helga Kristín.

Sveinspróf eru lokapróf í löggiltum iðngreinum og staðfesta að nemendur hafi náð þeirri faglegu hæfni sem krafist er til að starfa sem sveinar í sinni grein. Prófið fór fram dagana 5.–7. júní í húsnæði skólans.

Að sögn Helgu skiptir miklu máli fyrir nemendur að geta lokið þessum áfanga í Vestmannaeyjum.

„Fyrir nemendur er þetta mikill ávinningur. Þeir þurfa ekki að fara upp á land til að taka prófið heldur geta lokið náminu hér heima. Það styrkir jafnframt stöðu skólans sem miðstöð iðn- og starfsnáms í Vestmannaeyjum,“ segir hún.

Nánar í næsta blaði Eyjafrétta.

 

Nýjustu fréttir

Ábending frá Herjólfi
ÍBV og Þór jöfn að stigum fyrir leik kvöldsins
Snorri Steinn velur landsliðshópinn fyrir undankeppni EM – Elliði Snær með
Breki VE tekur þátt í haustralli Hafró
Gul viðvörun fyrir allt landið á sunnudag
Áhyggjur af fjármögnun Herjólfs og Landeyjahafnar
Boða átak vegna gáma og númerslausra bíla
Tvær ferðir til Landeyjahafnar fyrir hádegi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.