Tjón á Blát­indi eft­ir flakk um höfn­ina

Unnið er að því að ná vél­bátn­um Blát­indi VE upp, en hann sökk við bryggju í Vest­manna­eyj­um í óveðrinu á föstu­dag. Skipið var smíðað í Eyj­um 1947 og er friðað á grund­velli ald­urs sam­kvæmt lög­um um menn­ing­ar­minj­ar.

Í um­fjöll­un um Blátind í Morg­un­blaðinu í dag seg­ir Krist­ín Hart­manns­dótt­ir, formaður fram­kvæmda- og hafn­ar­ráðs í Vest­manna­eyj­um, ljóst að ein­hverj­ar skemmd­ir hafi orðið á bátn­um og verði tjónið metið þegar bát­ur­inn verður kom­inn á þurrt. Hún seg­ir að menn séu meðvitaðir um friðun báts­ins og hafi Minja­stofn­un óskað eft­ir að fylgj­ast með fram­vind­unni.

Krist­ín seg­ir að kafari hafi myndað Blátind á botn­in­um og reynt að meta tjónið. Skemmd­ir séu bæði á skut og fremst á dekki, að lík­ind­um eft­ir að bát­ur­inn hafi stung­ist á stefnið þegar hann fór í kaf. Vegna þess­ara og hugs­an­lega fleiri skemmda sé ekki talið ráðlegt að reyna að hífa skipið upp.

Þess í stað sé nú verið að út­vega búnað eins og lyftipyls­ur eða belgi til að lyfta skip­inu. Þetta sé flókið verk­efni þar sem skipið er þungt. Fyr­ir­hugað er að koma Blát­indi fyr­ir í aðstöðu hjá Skipa­lyft­unni við Eiðið. Þar verði vænt­an­lega hægt að draga eða lyfta hon­um á land og meta hversu mikið tjón hafi orðið.

Mbl.is greindi frá

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.