Töfruðu fram saltfiskveislu að hætti Portúgala
VSV IMG 6809
Veislukokkarnir Susana og Carla. Sú síðarnefnda á einmitt afmæli í dag. Ljósmynd/vsv.is

Það var brugðið út af vananum, eins og stundum er gert, í hádegishléi starfsfólks í fiskvinnslu Vinnslustöðvarinnar í dag. Boðið var upp á saltfiskrétti að portúgölskum hætti​. Slíkt var einnig gert ​síðastliðið vor og heppnaðist þá afar vel.​ Það tókst ekki síður vel til núna​. ​Maturinn frábær og góð stemning.​

Um matargerðina sáu þær Carlota Teigas (Carla) og ​Susana Sequeira eins og í vor. Svo skemmtilega vill til að Carla á einmitt afmæli í dag og sendum við henni hamingjuóskir, segir í frétt á vefsíðu Vinnslustöðvarinnar.

Boðið var upp á Punheta de Bacalhau, sem er marineraður saltfiskur og Bacalhau com natas, sem er ofnbakaður saltfiskur í rjómasósu. Í eftirrétt var svo afar góð ostaterta sem einnig á uppruna í Portúgal.​ Við þökkum Cörlu og Susönu fyrir enn og aftur​, segir í umfjölluninni og er áhugasömum bent á að leita á netinu að nöfnum réttanna til að fá uppskriftir og leiðbeiningar um matreiðslu þeirra.

Fleiri myndir frá veislunni má sjá hér.

Nýjustu fréttir

ÍBV tapaði með sex mörkum á Akureyri
Elmar með tíu stoðsendingar í sigri Nordhorn
Frá borholusjó til flögusalts
46 íbúðir í byggingarferli í Eyjum – 20 fullbúnar en ónotaðar
Júníus Meyvant með tónleika í Alþýðuhúsinu
Fyrsti leikurinn undir stjórn Bergvins
Loppumarkaður á Heiðarvegi um helgina
Opna fjöldahjálparstöð í Arnardrangi á laugardag
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.