Tóku flugið í Eldheimum og hrifu tónleikagesti
Tónleikunum lauk með kraftmiklum flutningi á laginu Heima eftir Oddgeir Kristjánsson við texta Ása í Bæ.

Frábær stemning var í Eldheimum á laugardaginn þegar þrír af fremstu óperusöngvurum landsins komu fram ásamt Helgu Bryndísi Magnúsdóttur píanóleikara. Kraftmikill söngur, létt spjall og glæsileg efnisskrá gerðu tónleikana að eftirminnilegri stund fyrir tónleikagesti.

Vel var mætt á tónleikana þar sem bassasöngvarinn Kristinn Sigmundsson, einn virtasti söngvari Íslands fyrr og síðar steig á svið ásamt tenórunum Gissuri Páli Gissurarsyni og Kolbeini Jóni Ketilssyni. Við flygilinn sat Helga Bryndís Magnúsdóttir sem sýndi enn á ný hvers vegna hún er talin meðal fremstu undirleikara landsins.

Samspil þeirra fjögurra var einstaklega gott og Helga Bryndís lagði traustan grunn að glæsilegum flutningi söngvaranna. Þeir voru greinilega í miklu stuði og á milli laga skemmtu þeir gestum með léttum og persónulegum sögum sem sköpuðu hlýlegt andrúmsloft og góða tengingu við salinn.

 

Helga Bryndís sýndi enn á ný að hún er meðal fremstu undirleikara landsins.

 

Fyrri hluti tónleikanna var helgaður íslenskum söngperlum þar sem tónskáld á borð við Sigvalda Kaldalóns nutu sín vel. Lög við ljóð helstu skálda þjóðarinnar fengu að njóta sín og var vel tekið af áheyrendum.

Eftir hlé færðist dagskráin yfir í evrópska klassík. Verk eftir Schubert, Franz Lehár og Richard Strauss hljómuðu glæsilega og síðan tóku við lífleg napólísk sönglög sem vöktu mikla ánægju. Léttleikinn, húmorinn og sönggleðin smituðu út frá sér og salurinn fagnaði vel.

Tónleikunum lauk með kraftmiklum flutningi á laginu Heima eftir Oddgeir Kristjánsson við texta Ása í Bæ. Þar sameinuðust raddir söngvaranna af miklum krafti og innlifun og uppskáru þau langvarandi lófatak frá þakklátum tónleikagestum.

Tónleikarnir voru glæsilegur hluti af dagskrá Goslokahátíðar og enn ein staðfestingin á því að klassísk tónlist á fullt erindi við Eyjamenn þegar hún er flutt af slíkum listamönnum.

 

Nýjustu fréttir

Alexander Örn – Litlu atriðin skipta mestu máli
Sigurður Andrason – Stóð upp úr að vera valinn í Landsliðið
Tóku flugið í Eldheimum og hrifu tónleikagesti
Goslokahátíð náði hápunkti á laugardeginum
Lúkas Goði – Stefnan tekin á atvinnumennsku
Alexandra Ósk – Þetta líður miklu hraðar en þú heldur
Vilja að hafinn verði undirbúningur að smíði nýrrar ferju
ÍBV sækir Víking heim á morgun
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.