Tólf kærur vegna brota á umferðarlögum
�?að var nóg um að vera hjá lögreglunni í liðinni viku. Einn ökumaður var stöðvaður vegna gruns um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefnai í vikunni og við leit á honum fundust ætluð fíkniefni. Reyndist hann vera með meðferðis smáræði af kókaíni, amfetamíni og maríhúana, auk þess var hann með lyf meðferðis.
Tvö önnur fíkniefnamál komu upp í vikunni en um var að ræða smáræði af maríhúana sem annars vegar fannst við leit á karlmanni á fimmtugsaldri og hins vegar efni sem fundust á víðavangi.
Að morgni 10. apríl sl. vöknuðu bæjarbúar við verið var að skjóta upp flugeldum á hafnarsvæðinu. Ekki er vitað hver þarna var að verki en þeir sem hafa einhverjar upplýsingar um það eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögreglu.
Alls liggja fyrir 12 kærur vegna brota á umferðarlögum en um er að ræða akstur án ökuréttinda, brot gagnvart biðskyldu og ólöglega lagningu ökutækja.
Lögreglan vill enn og aftur minna á að sektir vegna brota á umferðarlögum hækka þann 1. maí nk.

Nýjustu fréttir

Jafntefli hjá Heimi og Írum gegn Ísrael
Fimm ferðir til Landeyjahafnar á mánudag – dýpkun að hefjast
Erlingur stýrði Minden til sigurs í sínum fyrsta leik
Lærdómur liðinnar viku
Herjólfur siglir eina ferð til Landeyjahafnar síðdegis
ÍBV tapaði stórt gegn FH í Kaplakrika
Vilja öflugri dráttarbát og aðkomu ríkisins að fjármögnun
Eyjafólk í Landsleikunum á RÚV
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.