Tolli sýnir í flugstöðinni

Fimmtudaginn 4. Júlí verður opnuð sýning á nýjum olíumálverkum eftir Tolla á Vestmannaeyjaflugvelli. Boðið verður upp á léttar veitingar þann 4 júlí frá 16-18:30

Sýningin er samvinnuverkefni Isavia, rekstraraðila flugvallarins, og Tolla. Sýningin hefur ferðast um landið síðan fyrsta sýningin var opnuð í flugstöðinni á Egilsstöðum í september í fyrra. Auk Egilsstaða og nú Vestmannaeyja hefur Tolli boðið upp á samskonar sýningar í flugstöðvunum á Akureyri og Ísafirði. Sýningin mun standa fram yfir verslunarmannahelgi. Tímasetning sýningar Tolla í flugstöðinni í Vestmannaeyjum er ekki tilviljun. Goslokahátíð og hátíðarhöld vegna 100 ára afmælis Vestmannaeyjabæjar hefjast þennan dag, 4. júlí. Sýning Tolla er hluti af þeim hátíðarhöldum.

Sýningin í flugstöðinni í Vestmannaeyjum er sú síðasta í röðinni hjá Tolla að fara hringinn í kringum landið. Í framhaldinu er stefnam tekin á því að því að nýta rými flugstöðva á Íslandi til að styðja við ungt listafólk á hverjum stað og gera því mögulegt að koma verkum sínum á framfæri þar.

Listamaðurinn Tolli er ekki þekktur fyrir að fara troðnar slóðir þegar kemur að sköpuninni, framsetningu á listinn eða vali á sýningarrými. Síðustu misseri hefur málarinn sótt aftur í ræturnar og ferðast um landið en hann hefur oft talað um það að árin sem farandverkamaður hafi mótað hann mikið á yngri árum. Það kemur fram í listinni um leið og það landsbyggðina togar sífellt í hann. Tolli hefur sýnt víða, í yfirgefnum verksmiðjum, tónlistarhúsum og í verslunarmiðstöðvum. „Mér finnst áríðandi að fara með listina á vettvang. Hafa hana ekki fast í sínu verndaða umhverfi sýningarsalanna í borginni. Heldur fara með hana til fólksins.“

„Ég ryð brautina og vinn með Isavia í því að gera flugstöðvarnar sýningavænar og nota mína list til að venja farþega og ferðalanga við hugmyndina að búið að sé að setja upp sýningarrými í þessum fallegu byggingum. Svo koma flottir ungir listamenn sem eru að springa úr sköpunarkrafti og fylla þessi rými af enn meiri gleði,“ segir Tolli.

Nýjustu fréttir

Gular viðvaranir víðast hvar
Ófært til lands – uppfært
Gyllta flóran keppir fyrir hönd Féló
Bíða enn eftir alvöru vertíðarstemmningu
Ferðaþjónustan er öflug atvinnugrein sem þarf tryggar samgöngur
Gul viðvörun á Suðurlandi: Búist við þrumuveðri
Evrópudagur talþjálfunar er í dag
Forsala á Þjóðhátíð 2026 hafin
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.