Tómas Bent lagði upp mark í sigri Hearts
Tómas Bent Magnússon í leik með Hearts.

Eyjamaðurinn Tómas Bent Magnússon var í byrjunarliði Hearts í 0-3 útisigri gegn Stenhousemuir í 8-liða úrslitum skoska deildarbikarsins í fótbolta í gærkvöld. Stenhousemuir leikur í næstefstu deild í Skotlandi og er á toppnum þar. Hearts situr í þriðja sæti skosku úrvalsdeildarinnar.

Tómas lék á miðjunni hjá Hearts og spilaði 65 mínútur. Hann lagði upp fyrsta mark liðsins sem JJ Williams skoraði á 35. mínútu leiksins. Roger Mato skoraði annað mark Hearts fjórum mínútum síðar og Yan Dhanda innsiglaði sigurinn stundarfjórðungi fyrir leikslok.

Hearts er því komið í undanúrslit skoska deildarbikarsins en það er ekki ljóst hverjum liðið mætir þar, þar sem hinir leikirnir fara fram um helgina.

Nýjustu fréttir

Elísa Viðarsdóttir leggur skóna á hilluna
Íþróttamaður mánaðarins – Milena Mihaela Patru
Herjólfur III tilbúinn til afleysinga
Sigur hjá Arnari og íslensku stelpunum gegn Póllandi
Freyja flutti búnað fyrir radarhýsi til Eyja
Það á að hrósa því sem vel er gert
Hádegismatur með fjölskyldunni forréttindi 
Stærsti kosturinn að geta búið í Eyjum 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.