Toppliðið engin fyrirstaða
Tomas Bent Mynd
Tóm­as Bent Magnús­son skoraði eitt marka ÍBV í kvöld.

Eyjamenn gerðu góða ferð í Grafarvoginn í kvöld, þegar liðið mætti toppliði deildarinnar, Fjölni. Eyjaliðið fór hamförum í leiknum og gjörsigruðu Fjöln­is­menn.

Staðan í leikhléi var 0-4. Bjarki Björn Gunn­ars­son kom ÍBV yfir á 13. mín­útu. Á fjögra mín­útna kafla í lok hálfleiksins komu svo mörkin á færibandi. Tóm­as Bent Magnús­son skoraði á 44. mín­útu, Oli­ver Heiðars­son, bætti við þriðja marki ÍBV á fyrstu mín­útu upp­bót­ar­tíma og Vicente Val­or setti svo fjórða mark­ið á þriðju mín­útu upp­bót­ar­tímans. Á 56. mín­útu, bætti Oli­ver við öðru marki sínu og fimmta marki ÍBV. Fjölnir minnkaði svo muninn þegar tíu mínútur lifðu leiks. Lokatölur 1-5. Með sigr­in­um minnkaði ÍBV for­skot Fjöln­is á toppn­um í aðeins eitt stig.

Nýjustu fréttir

Alexandra Ósk framlengir við ÍBV
Bifreið hafnaði á járngirðingu við Kirkjuveg
Hjartans þakkir fyrir samúð og hlýhug
Gugusar fimmti tónlistamaðurinn á Hljómey
Tónlistarsköpun fyrir ungmenni í Féló
Dramatískur sigur ÍBV á Haukum
Stórsigur ÍBV á Akureyri
Lengjubikarinn hófst í dag hjá ÍBV
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.