Toppliðið heimsækir Hásteinsvöll
ÍBV tekur á móti Breiðabliki í Bestu deild kvenna
Frá leik ÍBV og Breiðabliks á Hásteinsvelli í júní. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

Kvennalið ÍBV fær topplið Breiðabliks í heimsókn í Bestu deild kvenna í dag. Leikurinn fer fram á Hásteinsvelli og hefst klukkan 14:00.

Bæði lið hófu keppni í efri hluta deildarinnar með sigri. ÍBV vann Þrótt 4–3 í fjörugum leik á Hásteinsvelli en Breiðablik hafði betur gegn Grindavík/Njarðvík, 4–1. Breiðablik er í efsta sæti deildarinnar með 40 stig, jafnmörg og FH, en Kópavogsliðið er með betri markatölu. ÍBV er í þriðja sæti með 30 stig, fjórum stigum á undan Stjörnunni.

Með sigri í dag geta Eyjakonur styrkt stöðu sína í þriðja sætinu og um leið minnkað forskot Breiðabliks í sjö stig. Leikurinn á Hásteinsvelli er sá fyrsti af þremur leikjum umferðarinnar í efri hlutanum. Þróttur tekur á móti Stjörnunni á morgun og þá mætast einnig Grindavík/Njarðvík og FH.

Nýjustu fréttir

Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
ASÍ skorar á stjórnvöld að falla frá breytingum á Loftbrú
Hugleiðingar varðandi umgengni og árangur í íþróttum
Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.