Toppliðið mætir ÍBV á Hásteinsvelli
ÍBV og FH mættust í síðasta mánuði á Hásteinsvelli í bikarnum. ÍBV sigraði þann leik. Myndin er tekin í þeim leik. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

ÍBV tekur á móti toppliði FH í Bestu deild kvenna í knattspyrnu á Hásteinsvelli í dag. Flautað verður til leiks klukkan 18.00.

FH hefur farið vel af stað í sumar og trónir á toppi deildarinnar með 29 stig eftir 12 leiki. Hafnarfjarðarliðið hefur unnið níu leiki, gert tvö jafntefli og aðeins tapað einum. Þá hefur liðið skorað 44 mörk, flest allra liða í deildinni, og fengið á sig 19.

ÍBV er í fjórða sæti með 20 stig eftir jafnmarga leiki. Eyjakonur hafa unnið sex leiki, gert tvö jafntefli og tapað fjórum. Markatala liðsins er 19–20.

FH kemur til Eyja í góðu gengi og hefur unnið fjóra af síðustu fimm leikjum sínum og gert eitt jafntefli. Gengi ÍBV hefur verið sveiflukenndara að undanförnu, en liðið hefur unnið tvo af síðustu fimm leikjum, gert eitt jafntefli og tapað tveimur.

Mikið er undir hjá báðum liðum. FH freistar þess að halda toppsætinu og verja tveggja stiga forskot sitt á Breiðablik. ÍBV getur hins vegar með sigri komist upp í 23 stig og farið upp fyrir Stjörnuna í þriðja sætið.

Tveir aðrir leikir fara fram í deildinni í dag. Breiðablik, sem er í öðru sæti með 27 stig, tekur á móti Þór/KA á Eikarvelli klukkan 18.00. Klukkan 19.15 eigast síðan við Fram og Valur á Lambhagavellinum.

Nýjustu fréttir

Óska er eftir tilnefningum frá bæjarbúum
Aron Valtýsson – Hleypur maraþon fyrir Krabbavörn Vestmannaeyja
Millet-gengið tekur Eyjar alltaf með trompi
Páll aftur á Sprengisandi – Beint í djúpu laugina
Framtíðarsýn um réttlæti og stöðugleika
Fótboltamaðurinn Bjarki Björn Gunnarsson er íþróttamaður mánaðarins
Veðurblíðan í Eyjum í sumar á sér fáar hliðstæður
Fjölbreytt námskeið hjá Visku í haust
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.