Toppur tilverunnar að komast á hestbak eftir makrílvaktina
14. júlí, 2020

Hún hefur um árabil verið flokksstjóri í sölum Vinnslustöðvarinnar, þar af undanfarin fjögur ár í nýju uppsjávarvinnsluhúsi fyrirtækisins. Ingigerður Guðrún Helgadóttir á að baki starfsferil í aldarfjórðung hjá VSV og hefur komið þar víða við sögu í fiskvinnslunni. Utan vinnu sinnir hún fjórfættum vinum og telur ekki eftir sér að verja miklum tíma í kringum hrossin sín fimm.

Ingigerður hefur haft áhuga á hestum og reiðmennsku frá því hún man eftir sér sem stelpuskott á bænum Þursstöðum í Borgarfirði. Styttum okkur leið og köllum hana Ingu. Þannig er vinnusloppurinn hennar merktur og það hlýtur að jafngilda leyfi til einföldunar.

Lífið er annars makríll dag og nótt um þessar mundir. Og hross líka eftir atvikum, að sjálfsögðu.

„Makríllinn sem veiðist núna er að jafnaði stór með hóflega átu í maga og lítið ber á skemmdum í aflanum. Nýtingin er því góð. Gæðaeftirlitið í vinnslunni er öflugt og virkt. Stöðugt eru teknar öskjur til athugunar að pökkun lokinni, hver einasti fiskur vigtaður og skorinn upp, átuhlutfall í maga skoðað og sjálft fiskholdið sömuleiðis. Allt skráð og tryggt að á hverjum tíma sé hægt að rekja á augabragði hvenær fiskurinn hafi veiðst og farið í gegnum vinnsluferlið í landi.“

Stórasti makríllinn?
Þegar samtalið átti sér stað var makríll úr Huginn á vigt og skurðarborði gæðaeftirlitsins. Fiskarnir reyndust yfirleitt vera á bilinu 350 til 450 grömm og frekar rýrir til kviðsins. Lítil áta í maga telst til góðra frétta í makrílbransanum.

Makríll er langlífur fiskur, innan við 200 grömm að þyngd ársgamall en að meðaltali um og yfir 600 grömm á níu ára afmælinu.

Á yfirstandandi vertíð hafa fáeinir makrílar í yfirstærð borist VSV. Undanfarna sólarhringa mældist til að mynda einn fiskurinn tæplega 800 grömm og annar hátt í eitt kílógramm. Stærsti makríllinn í fjögurra ára sögu uppsjávarhúss  VSV vóg vel yfir 1.200 grömm. Þegar slíkt furðuverk birtist slær þögn á mannskapinn og þarf talsvert til.

Ísland var stórasta land í heimi á Ólympíuleikum í Kína, sagði Dorrit forsetafrú forðum daga. Hafa Eyjamenn kannski veitt stórasta makríl Íslands?

Mörg tonn, fáar vinnandi hendur
„Ég kom fyrst til starfa hjá Vinnslustöðinni fyrir 25 árum og hef lengst af verið flokksstjóri, nú síðast í nýju, uppsjávarvinnslunni. Yfirleitt er gaman í vinnunni en þegar ekki veiðist loðna tvö ár í röð kárnar gamanið að vísu um hríð. Í loðnuleysistímanum í vetur var ég í saltfiskvinnslunni, það var reyndar ágæt tilbreyting.

Uppsjávarvinnslan er sjálfvirk og tæknivædd. Hér eru innan við 30 manns á tólf tíma vakt hverju sinni en þegar mest er fara um og yfir 200 tonn í gegnum húsið á einni vakt eða á fimmta hundrað tonna á sólarhring.“

Góðar reiðleiðir í Eyjum
„Eftir vinnu er toppur tilverunnar að komast á hestbak og það geri ég oft. Þó nokkrir hestamenn eru í Vestmannaeyjum og margar mjög góðar reiðleiðir. Hér var meira að segja hestamannafélag í eina tíð en það lognaðist út af. Hestamennirnir eru engu að síður samheldinn og góður hópur.

Foreldrar mínir í Borgarfirði höfðu engan áhuga á hestamennsku en ég heillaðist af hrossum strax sem krakki í sveitinni og kom því í gegn við tólf ára aldur að tamdir yrðu hestar handa mér til útreiða. Ég sá engan veginn fyrir mér þá að síðar meir yrði ég hestamaður í Vestmannaeyjum! Framtíðin er heldur sjaldnast fyrirsjáanleg nema að litlu leyti“

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
1. maí blað Drífanda
1. maí blað Drífanda

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
viðburðir
Ársþing ÍBV
13. maí 2025
20:00
Ársþing ÍBV
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst