Truflar ekki leikjaplanið að missa Hásteinsvöll
default
Hásteinsvöllur. Ljósmynd/Halldór B. Halldórsson

Í gær var greint frá því hér á Eyjafréttum að enn sé beðið eftir efni til að setja í Hásteinsvöll og er hann því ekki leikfær. Áætluð afhending á innfylliefninu er eftir 2 vikur, sagði í fundargerð framkvæmda- og hafnarráðs í vikunni.

Framundan er TM-mót ÍBV og koma til Eyja 112 lið til að taka þátt í mótinu. Ellert Scheving Pálsson, framkvæmdastjóri ÍBV íþróttafélags segir í samtali við Eyjafréttir að auðvitað hefðu þau viljað spila á Hásteinsvelli á mótinu en svo verði ekki.

„Hugmyndir voru uppi um það að 5.flokkur kvenna myndi vígja völlinn á mótinu, það hefði verið skemmtilegt. Við undirbúning og skipulag mótsins höfðum við þó varann á og gerðum ekki ráð fyrir Hásteinsvelli. Það truflar ekki leikjaplanið að missa Hásteinsvöll. Það skal tekið fram að landsleikurinn sem venjulega er spilaður á Hásteinsvelli verður spilaður á Þórsvelli,” segir Ellert en þess má geta að TM-mótið hefst á fimmtudaginn nk.

 

default   Tafir á afhendingu innfylliefna

Nýjustu fréttir

Ísfélagið komið með tvo þriðju af loðnukvótanum
„Loðna með suðurströndinni og henni fylgir mikill fjöldi hvala”
5. bekkur kynnti sér loðnuna í uppsjávarvinnslu VSV
Kallar eftir tafarlausum úrbótum
Kokkurinn heldur áhöfninni gangandi  
Þegar þú lend­ir í svona ferðu að hugsa hlut­ina allt öðru­vísi
Álfsnes úr leik vegna bilunar
Trausti opnar kosningaskrifstofu í gamla TM Húsinu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.