Tryggvi áfram formaður Hugverkaráðs SI

Nýtt Hugverkaráð Samtaka iðnaðarins hefur verið skipað. Hugverkaráð SI hefur undanfarin ár verið vettvangur umræðu um stöðu hugverkaiðnaðar á Íslandi, greininga og margvíslegrar stefnumótunar.

Í nýju Hugverkaráði SI sem er skipað til ársins 2025 sitja Tryggvi Hjaltason Senior Strategist hjá CCP sem er formaður, Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri SI, Gunnar Zoëga forstjóri OK, Íris E. Gísladóttir rekstrarstjóri Evolytes, Vigdís Tinna Sigurvaldadóttir lögfræðingur hjá Marel, Halldór Snær Kristjánsson framkvæmdastjóri Myrkur Games, Guðmundur Árnason fjármálastjóri Controlant,  Klara Sveinsdóttir framkvæmdastjóri gæða- og skráningarmála hjá Kerecis, Bergþóra Halldórsdóttir Chief of Staff hjá Borealis Data Centers og Róbert Helgason framkvæmdastjóri KOT hugbúnaðarlausna og Autoledger.

Hugverkaiðnaður hefur fest sig í sessi sem fjórða stoð útflutnings Íslands. Innan hugverkaiðnaðar eru meðal annars fyrirtæki í tölvuleikjaiðnaði, líf- og heilbrigðistækni, menntatækni, upplýsingatækni og hátækniframleiðslu.

Fjölmörg viðfangsefni eru fram undan hjá nýju Hugverkaráði SI sem snúa meðal annars að frekari umbótum í starfsumhverfi fyrirtækja í hugverkaiðnaði og þeirri umgjörð sem nýsköpun er búin hér á landi.

Á myndinni eru, talið frá vinstri, Guðmundur Árnason hjá Controlant, Nanna Elísa Jakobsdóttir hjá SI, Halldór Snær Kristjánsson hjá Myrkur Games, Gunnar Zoëga hjá OK, Tryggvi Hjaltason hjá CCP, Bergþóra Halldórsdóttir hjá Borealis Data Centers, Sigurður Hannesson hjá SI, Róbert Helgason hjá KOT/Autoledger og Klara Sveinsdóttir hjá Kerecis.

Fréttatilkynning.

 

Nýjustu fréttir

Jafntefli hjá Heimi og Írum gegn Ísrael
Fimm ferðir til Landeyjahafnar á mánudag – dýpkun að hefjast
Erlingur stýrði Minden til sigurs í sínum fyrsta leik
Lærdómur liðinnar viku
Herjólfur siglir eina ferð til Landeyjahafnar síðdegis
ÍBV tapaði stórt gegn FH í Kaplakrika
Vilja öflugri dráttarbát og aðkomu ríkisins að fjármögnun
Eyjafólk í Landsleikunum á RÚV
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.