Tunglið, tunglið taktu mig
Tungl Opf 20251108 210955
Tunglið. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar Pétur Friðriksson

Tunglið, tunglið taktu mig og berðu mig upp til skýja. Hugurinn ber mig hálfa leið í heimana nýja. svona hefst texti lagsinsTunglið, tunglið taktu mig eftir Theodoru Thoroddsen. Hann á ágætlega við þessar flottu myndir sem Óskar Pétur Friðriksson, ljósmyndari Eyjafrétta tók seint í gærkvöldi af tunglinu að lýsa upp dimman himininn.

Á Stjörnufræðivefnum segir að Tunglið eða Máninn sé eini náttúrulegi fylgihnöttur Jarðar og nálægasta náttúrulega fyrirbæri himins, ef frá eru talin stöku smástirni sem þjóta framhjá Jörðinni annað slagið. Tunglið er bjartasti hnötturinn á næturhimninum og sá eini þar sem við getum skoðað landslagið með berum augum. Frá Jörðu séð vex tunglið og dvínar, þ.e. það gengur í gegnum kvartilaskipti á 29,5 degi.

Saga tunglsins er nátengd sögu Jarðar en talið er að það hafi myndast þegar hnöttur á stærð við Mars, kallaður Þeia, rakst á Jörðina skömmu eftir myndun hennar. Tunglið hefur líka sögulega þýðingu fyrir okkur mannfólkið því það er eini hnötturinn sem menn hafa stigið fæti á utan Jarðar, segir í umfjölluninni.

Nýjustu fréttir

Helgi Rúnar hefur fylgst með Kveikjum neistann frá upphafi
Hafsteinn Þórólfsson syngur eyjaperlur í Eldheimum
Allison Clark í úrvalsliði Bestu deildar kvenna hjá Fótbolta.net
Blásið til sóknar í tónlistinni
Jón Þór vill yfirferð á verklagi eftir úrskurðina
Skáknámskeið fyrir fullorðna byrjendur hefst í nóvember
Eyþór treystir verklagi bæjarins – aðrir oddvitar vísa til trúnaðar
Vísindin að baki Kveikjum neistann 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.