Tvær líkamsárásir og vinnuslys
Tvær líkamsárásir voru kærðar til lögreglu um liðna helgi. Í öðru tilvikinu lenti maður í átökum við annan mann sem endaði með því að sá fyrri sló hinn þannig að hann rotaðist, auk þess veittist hann að tveimur konum sem kvörtuðu yfir eymslum eftir samskipti við manninn. Árárarmaðurinn var handtekinn og vistaður í fangageymslu. Málið er í rannsókn.
Í hinu tilvikinu urðu ósætti á milli manna sem í heimahúsi sem endaði með því annar sló hinn þannig að hann fékk áverka á eftir. Ekki var um alvarlega á verka að ræða en málið er í rannsókn.
Í liðinni viku var lögreglu tilkynnt um að bifreið hefði verði tekin ófrjálsri hendi fyrir utan heimahús. Ekki er vitað hver þarna var að verki en bifreiðin fannst skömmu síðar, óskemmd.
Eitt fíkniefnamál kom upp í vikunni en við húsleit í heimahúsi fannst smáræði af kannabisefnum og viðurkenndi húsráðandi að eiga efnin. Málið telst því að mestu upplýst. Við sömu húsleit var maður handtekinn sem ekki gaf ekki upp sitt rétta nafn og var hann því vistaður í fangageymslu þar til upplýst var um hver hann var í raun og veru.
Laust eftir hádegi þann 3. maí sl. var lögreglu tilkynnt um vinnuslys hjá Iðunn Seafoods ehf. v/Garðaveg en þarna hafði starfsmaður fest hendi í færibandi. Ekki var um alvarlega áverka að ræða en fingur mun hafa klemmst.
Tvær sektir liggja fyrir vegna brota á umferðarlögum og var í öðru tilvikinu um að ræða notkun á farsíma í akstri án handfrjáls búnaðar og þýðir það sekt upp á kr. 40.000,-. Í hinu tilvikinu var um að ræða ólöglega lagningu ökutækis sem þýðir sekt upp á kr. 20.000,-.
Lögreglan vill koma þeim tilmælum til foreldra og forráðamanna barna að þann 1. maí sl. breytist útivistatími barna og lengist þá heimildi þeirra til að vera á almannafæri um tvær klukkustundir, eins og fram kemur í 92. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002:
�??Börn, 12 ára og yngri, mega ekki vera á almannafæri eftir klukkan 20.00 nema í fylgd með fullorðnum. Börn, sem eru á aldrinum 13 til 16 ára, skulu ekki vera á almannafæri eftir klukkan 22.00, enda séu þau ekki á heimferð frá viðurkenndri skóla-, íþrótta- eða æskulýðssamkomu. Á tímabilinu 1. maí til 1. september lengist útivistartími barna um tvær klukkustundir.�??
Varðandi aldur þá er miðað við almannaksár.

Nýjustu fréttir

Jafntefli hjá Heimi og Írum gegn Ísrael
Fimm ferðir til Landeyjahafnar á mánudag – dýpkun að hefjast
Erlingur stýrði Minden til sigurs í sínum fyrsta leik
Lærdómur liðinnar viku
Herjólfur siglir eina ferð til Landeyjahafnar síðdegis
ÍBV tapaði stórt gegn FH í Kaplakrika
Vilja öflugri dráttarbát og aðkomu ríkisins að fjármögnun
Eyjafólk í Landsleikunum á RÚV
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.