Tvö brunaútköll í vikunni
Lögreglan hafði í ýmis horn að líta í liðinni viku vegna hinna ýmsu mála sem upp komu. Skemmtanahald helgarinnar fór fram með ágætum en eitthvað var þó um pústra í kringum öldurhúsin án þess þó að kærur liggu fyrir. Aðfaranótt 30. nóvember sl. var lögreglu tilkynnt um bruna í húsi við Bröttugötu. �?egar lögregla kom á staðinn var húsráðandinn, sem var einn í húsinu, kominn út. Greiðlega gekk að slökkva eldinn sem bundinn var við búr sem er inn af eldhúsi. Ljóst er að eldsupptök eru út frá ísskáp sem var inni í búrinu. Töluverðar skemmdir urðu á húsinu vegna sóts og reyks.
Síðdegis þann 28. nóvember sl. var lögreglu tilkynnt um eld í rafmagnskassa sem er við Dverghamar og talið að bifreið sem stóð við rafmagnskassann væri í hættu. Bifreiðinn reyndist hins vegar ekki vera í neinni brunahættu og varð einungis tjón á kassanum.
Alls liggja fyrir fjórar kærur vegna brota á umferðarlögum og var í öllum tilvikum um að ræða ólöglega lagningu ökutækja.

Nýjustu fréttir

Vikan í Eyjum: Herjólfur, framkvæmdir við höfnina og fjárhagsáætlun bæjarins
Lúðrasveitin í landsliðsklassa – Kraftur, gleði og glæsilegur samhljómur
Gera ráð fyrir 610 milljóna afgangi á næsta ári
Hausttónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja í myndum
Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.