Tvö fyrirtæki frá FÍV komin í úrslit fyrirtækjasmiðju
Vörusýning í Smáralind
Vörumessa í Smáralind

Tvö fyrirtæki frá Vestmannaeyjum hafa náð frábærum árangri og tryggt sér sæti í úrslitum fyrirtækjasmiðju ungra frumkvöðla, JA Iceland 2026. En fyritækin kynntu vörur sínar á svokallaðri vörumessu í Smáralind fyrr í mánuðinum.

Alls tóku 620 nemendur frá 18 framhaldsskólum þátt. Markmið fyrirtækjasmiðjunnar er að efla frumkvöðlahugsun meðal ungs fólks, auka skilning á rekstri og gefa nemendum raunverulega reynslu af því að þróa og kynna eigin vörur.

Alls komust 40 fyrirtæki í úrslit, tvö frá Eyjum. Fyrirtækin frá Eyjum voru Eyjakonfekt og Rit og rútína.

  • Eyjakonfekt býr til og framleiðir konfektmola innblásna frá Vestmannaeyjum og má meðal annars finna mola af Heimaklett, lunda, ÍBV og fleiru tengt Vestmannaeyjum.
  • Rit og rútína framleiddu dagrútínubók fyrir börn á aldrinum 3 ára og eldri. Bókin hvetur börn til að tileinka sér jákvætt hugarfar og svara daglega spurningum eins og fyrir hvað þau séu þakklát fyrir og svo framvegis.

 

Næst á dagskrá hjá hópunum sem komust áfram eru viðtöl við dómara í Arion banka á morgun, mánudag og svo verður uppskeruhátíðin í Arion banka á þriðjudaginn. Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins mun veita verðlaun í nokkrum mismunandi flokkum eins og fyrirtæki ársins, frumlegasti básinn, áhugaverðasta nýsköpunin og fleira.

Einstaklega vel gert hjá þessum flottu Eyjakrökkum!

Vörusýning í Smáralind
Hópurinn á bakvið Eyjakonfekt. Á myndina vantar þrjá aðila úr hópnum.
Vörusýning í Smáralind
Hópurinn á bakvið Rit og rútínu.

Nýjustu fréttir

Tvö fyrirtæki frá FÍV komin í úrslit fyrirtækjasmiðju
Við þurfum að hætta þessum bútasaumi
Úr fótbolta yfir í hlaup
Aníta Sif er Eyjamaður mánaðarins
Samfélag fyrir fjölskyldur
ÍBV tapaði gegn Haukum – Oddaleikur framundan
Kvennalið ÍBV byrjar Bestu deildina á sigri
Allir út að plokka á Heimaey á morgun
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.