Tvöföldun Suðurlandsvegar er meginmálið

�?að er gott. Lengi von á einum en við skulum halda þeim við efnið.
Nú á að gera allt fyrir alla og loforðin í samgöngumálum eru furðu fljót að gleymast að loknum kosningum. Loforðalistinn nú er svikaregister síðustu ára. Hve oft er búið að lofa Suðurstrandavegi sem sérstakri framkvæmd óháð öðrum? �?risvar og enn enginn vegur. �?á er mikilvægt að ljúka Gjábakkavegi og koma safnvegum sveitanna til nútímans.
�?g er stoltur af því hvernig baráttunni um tvöföldun vatt fram. �?rofa samstaða sveitarstjórnarmanna, stjórnarandstöðunnar á þingi og margra öflugra heimamanna skilaði sér að lokum. Allavega lofa þeir veginum nú.

Tafarlaus tvöföldun Suðurlandsvegar er þverpólitísk krafa innan úr miðju samfélagsins á Suðurlandi, og langt út fyrir það. Aðgreining akreina og tvöföldun vega er eitt mesta hagsmunamál þjóðarinnar og fyrir Sunnlendinga og alla þá sem reglubundið aka austur fyrir fjall er þetta stórt mála enda greiðar samgöngur og öruggar við höfuðborgarsvæðið undirstaða öflugs samfélags austan fjalls.

Slysaalda og tíð banaslys á Suðurlandsveginum undirstrika mikilvægi þess að ráðast tafaralaust í tvöföldun. 54 banaslys frá 1972. �?að þarf ekki að hafa fleiri orð um það.
Tvöfaldur umferðarhraði lítilla bíla annarsvegar og stórra bíla hinsvegar skapar aukna hættu og sú þunga umferð stórra bíla sem er um veginn eftir að sjóflutningar voru lagðir af. Vegurinn annar ekki né þolir þessa umferð. Tvöföldun, fjórar akreinar alla leið, er eina ásættanlega lausnin.

Almennur vilji íbúa stendur til tvöföldunar vegarins í áföngum enda skiptir það miklu máli hvað varðar öryggi á þessum öðrum fjölfarnasta vegi landsins utan höfuðborgarinnar og í því að efla samkeppnishæfi Suðurlands við aðra landshluta. Samt er hönnun á þriggja akreina vegi boðin út.

Nú skiptir miklu máli að setja af stað samstillt átak til að þrýsta á stjórnvöld til að taka til baka fyrri ákvörðun um þriggja akreina veg í stað fjögurra og fullrar breikkunar. �?ar þurfa allir að standa þétt saman, þingmenn, sveitarstjórnarmenn og aðrir forystumenn í fjórðungnum.

Umferð um Suðurlandsveg hefur aukist um 80% á nokkrum árum. Topparnir í traffíkinni eru með þeim hætti að það er viðvarandi hættuástand á veginum. Fari bíll yfir á rangan vegarhelming gerist það sem allir óttast og verstu slysin verða.

Nú skulu stóru orðin standa og tryggjum tvöföldun vegarins. �?að er meginmálið.

Höfundur er þingmaður og oddviti Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi.

Nýjustu fréttir

Kjarnaborun hafin í Eyjum
Höfum áhrif – Framtíðin er í okkar höndum
Sex hópar frá FÍV tóku þátt í vörumessu í Smáralind
Spurt og svarað: Hannes Kristinn frá Sjálfstæðisflokknum
HSU: Gervigreind styður við myndgreiningu og bráðaþjónustu
ÍBV kom til baka og vann frábæran sigur gegn Haukum
Íslandsmótið í Boccia hófst í Eyjum í dag
Hvar er grafskipið? Hvar eru upplýsingarnar?

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.