Tyrkjaganga - fyrsti hluti
20. júlí, 2024
Ragnar Óskarsson. Skjáskot/youtube

Í dag bauð  Sögusetrið 1627 í Vestmannaeyjum upp á dagskrá sem tengist Tyrkjaráninu 1627. Á þessu ári eru liðin 397 ár frá því að ræningjar frá Alsír komu hingað til Vestmannaeyja þar sem þeir rændu, rupluðu,  drápu 36 íbúa og tóku 242 manneskjur með sér á þrælamarkaði í Alsír. Þessir atburðir mörkuðu djúp spor í sögu Vestmannaeyja og því er full ástæða til að minnast þeirra og miðla milli kynslóða Eyjamanna.

Nú í ár minnist Sögusetrið atburðanna með dagskrá sem dreifist á þrjá daga. Hinn 8. júní sl. var dagskrá í Krosskirkju í Austur- Landeyjum þar sem fjallað var um Kláus Eyjólfsson sem kom út til Vestmannaeyja nokkru eftir ránið og skrifaði vandaða frásögn um atburðina sem hér gerðust. Þá var og fjallað um altaristöflu kirkjunnar sem Kláus gaf en sú tafla hefur augljósa skírskotun til ránsins í Eyjum.  Dagskrá þessi var fjölsótt og heppnaðist í alla staði vel.

Í dag kom fólk saman við Landakirkju og nokkrir þættir úr sögu hennar ræddir. Gengið var að Stakkagerðistúni að minnisvarða um Guðríði Símonardóttur. Þá var gengið á Skansinn þar sem  rætt verður um ýmsa sögulega þætti Tyrkjaránsins. Göngustjóri var Ragnar Óskarsson og má sjá upptöku Halldórs B. Halldórssonar frá fyrsta hlutanum hér að neðan. Dagskraín heldur áfram á morgun.

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
Forsida 5 Tbl EF
5. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.