Eins og áður hefur verið greint frá, er knattspyrnulið ÍBV með Úkraínumann til reynslu þessa dagana. Um er að ræða framherjann Denis Sytnik, sem um tíma var á mála hjá úkraínska stórliðinu Dynamo Kiev. Sytnik fór mikinn í æfingaleik á þriðjudagskvöldið og skoraði fjögur mörk í 5:2 sigri ÍBV gegn Hvöt.