Ungu stelpurnar fá stórt hlutverk
Ibv Kv Hopurinn 24 25 Opf DSC 1408
Kvennalið ÍBV keppnistímabilið 24/25. Eyjafréttir/Eyjar.net: ÓPF

Síðastliðinn föstudag voru fyrstu heimaleikirnir hjá ÍBV í handboltanum. Kvöldið áður bauð handknattleiksdeild ÍBV handboltaáhugamönnum á leikmannakynningu í Akóges.

Eyjafréttir ræddu við þjálfara beggja liða um tímabilið. Sigurður Bragason, þjálfari kvennaliðsins segir aðspurður um hvernig tímabilið leggist í hann að það leggist bara mjög vel í hann. „Það er alltaf spenna að byrja nýtt tímabil.”

Nú eru töluverðar breytingar á leikmannahópnum frá í fyrra. Getur þú farið aðeins yfir þær?

Já, annað tímabilið í röð fara margar stelpur úr hópnum. Við missum 8 leikmenn en fáum eina. Það er vissulega ekki ákjósanlegt. Heilt byrjunarlið fer.  Þetta er nú bara veruleikinn við að þjálfa kvennalið hér. Þannig að ég verð að taka okkar ungu stelpur upp fyrr og setja þær í stórt hlutverk.

Er hann er inntur eftir svörum um hvaða lið hann sjái fyrir sér að verði í toppbaráttunni svarar hann: „Þetta er gamla lumman, Valur er með töluverða yfirburði í mannskap. Svo er þetta Haukar og Fram.”

Viltu koma einhverju á framfæri við stuðningsmenn liðsins?
Það er bara sama og öll hin árin, við erum mjög heppin með stuðning hér. Ég veit að það mun ekkert breytast, segir Sigurður Bragason.

Viðtalið við Magnús Stefánsson, þjálfara karlaliðs ÍBV birtist fljótlega hér á síðunni. Fleiri myndir frá leikmannakynningunni má sjá hér að neðan.

Nýjustu fréttir

Ekki einhugur um milljóna framlag til ÍBV
Loðnuvertíðin hafin í Eyjum
Heiðurshjónin Hjalti og Vera Björk Eyjafólk ársins 2025
Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.